Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Reglur um afnot af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 1410660

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2768. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 20. mars, lögð fram drög að reglum um afnot af íþróttamannvirkjum í eigu Kópavogsbæjar. Á fundi íþróttaráðs þann 19. mars sl. voru drögin samþykkt og málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.$line$

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþróttaráðs og samþykkir drög að reglum um afnot af íþróttamannvirkjum í eigu Kópavogsbæjar.

02

Íþróttaráð - 46. fundur

Lögð fram til afgreiðslu drög að reglum um afnot af íþróttamannvirkjum í eigu Kópavogsbæjar. Vegna framlagðra reglna um úthlutun á íþróttamannvirkjum hefur formaður Íþróttaráðs átt fundi með eftirfarandi aðilum;$line$-Hannes Strange, formaður aðalstjórnar Breiðabliks, og Kristján Jónatansson framkvæmdastjóri.$line$-Sigurjón Sigurðsson,formaður aðalstjórnar HK og Hólmfríður Kristjánsdóttir aðalstjórnarmaður.$line$-Harpa Þorláksdóttir, formaður stjórnar Gerplu og Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri.$line$-Ellen Dröfn Björnsdóttir, formaður Dansíþróttafélags Kópavogs.$line$ Einnig átti formaður, ásamt starfsmönnum íþróttadeildar fund með fulltrúum allra íþróttafélaga í Kópavogi með 1-2 deildir. Íþróttafélögunum var gefinn kostur á gera athugasemdir við reglurnar sem og að senda inn ábendingar í framhaldi af fundunum. Örfáar ábendingar um orðalag voru sendar inn en efnislega lýstu fulltrúar félaganna sig sammála framlögðum drögum.

Formaður íþróttaráðs gerði grein frá ofangreindum fundum og lagði til að drögin yrðu samþykkt.$line$Íþróttaráð samþykkir drögin óbreytt og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.$line$Við afgreiðslu málsins vék Sigurjón Jónsson af fundi.

03

Íþróttaráð - 43. fundur

Lögð fram drög að reglum um afnot af íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar.

Formanni íþróttaráðs falið að vinna áfram að málinu ásamt starfsmönnum deildarinnar og í þeim efnum að eiga samtal við íþróttafélög í bænum.

04

Íþróttaráð - 42. fundur

Formaður ráðsins kynnti helstu áhersluatriði í drögum að reglum um afnot íþróttamannvirkja bæjarins og hver væru næstu skref í vinnu málsins.

Formaður fór yfir kynningu á drögum að reglum um afnot íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar.$line$Afgreiðslu frestað.

05

Íþróttaráð - 41. fundur

Formaður greindi frá heimsókn hans ásamt fulltúum úr íþróttaráði til framkvæmdastjóra ÍTR.

Formaður gerði grein fyrir þeirri vinnu sem átt hefur sér stað á milli funda. Áfram verður unnið að framgang málsins og gögn lögð fram á næsta fundi íþróttaráðs.