Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, SPOT. Nemendafélag FG. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi

Málsnúmer: 1411015

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2749. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 3. nóvember, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags. 3. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Nemendafélags FG, kt. 660287-2649, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 6. nóvember 2014 2014, frá kl. 21:30-1:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$Ábyrgðarmaður er Kristinn Þorsteinsson og um öryggisgæslu annast Go Security.$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$

Bæjarráð samþykkir umsóknina með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.