Bæjarlind 6, SPOT. Nemendaf.Flensborgarskóla. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi
Málsnúmer: 1411067
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2749. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 4. nóvember, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 4. nóvember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Nemendafélags Flensborgarskólans, kt. 430985-0789, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 13. nóvember 2014 2014, frá kl. 22:00-1:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. $line$$line$Ábyrgðarmaður er Magnús Þorkelsson og um öryggisgæslu annast Go Security.$line$$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um. $line$$line$
Bæjarráð samþykkir umsóknina með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.