Aðstaða til varðveislu sögulegra gripa.
Málsnúmer: 1411087
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 39. fundur
Ráðið hafnar umsókninni fyrir sitt leyti að þessu sinni. Sviðsstjóri umhverfissviðs er einnig með málið hjá sér og er að leita að hentugu skammtímaplássi fyrir sögulega muni. Kópavogsbær hefur hins vegar ekki enn mótað sér stefnu að byggðarsafni og eða tekið ákvörðun um stofnun slíks safns sem myndi krefjast bæði safnavörslu og skráningar.
02
Lista- og menningarráð - 34. fundur
Forsvarsmenn Sögufélags Kópavogs, Þórður Guðmundsson og Hrafn Sveinbjarnarson, koma til fundar og skýra erindi sitt.
Lista- og menningarráð hefur áhuga á því að starfa með Sögufélagi Kópavogs að varðveislu og skráningu muna er tengjast sögu bæjarins. Ráðið felur formanni sínum að ræða við sviðsstjóra umhverfissviðs varðandi geymslupláss fyrir muni er tengjast sögu Kópavogs.
03
Lista- og menningarráð - 33. fundur
Erindi frá Sögufélagi Kópavogs, bæjarbókaverði og héraðsskjalaverði lagt fram.
Ákveðið að boða viðkomandi aðila á fund ráðsins.