Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bakkabraut 5 og 7. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1411101

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Lagt fram erindi Sigurjóns Á. Einarssonar dags. 10.6.2015 vegna afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi dags. 18.5.2015 á umsókn um breytt deiliskipulag Bakkabrautar 5 og 7.

Lagt fram.

02

Bæjarstjórn - 1117. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. maí, lagt fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar fyrir hönd lóðarhafa að Bakkabraut 5 og 7 að breyttu deiliskipulagi fyrir Bakkabraut 3, 5 og 7. Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.

03

Bæjarráð - 2775. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. maí, lagt fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar fyrir hönd lóðarhafa að Bakkabraut 5 og 7 að breyttu deiliskipulagi fyrir Bakkabraut 3, 5 og 7. Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

04

Skipulagsnefnd - 1259. fundur

Lagt fram erindi Sigurjóns Á. Einarssonar, dags. 27.4.2015 varðandi skipulag við Bakkabraut 5 og 7. Meðfylgjandi eru samantektir úr fundargerðum og afrit af samskiptum.$line$Þá lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingardeildar fyrir hönd lóðarhafa að Bakkabraut nr. 5a-e og 7a-d að breyttu deiliskipulagi fyrir Bakkabraut nr. 3, 5 og 7. Í tillögunni felst að breyta landnotkun á lóðunum að Bakkabraut nr. 5a-e og 7a-d úr atvinnuhúsnæði í blandaða landnotkun íbúða og atvinnustarfsemi og heimila þar með eina íbúð á hverri lóð. Bílastæðum á hverri lóð er fjölgað um eitt stæði. Tillagan er í samræmi við stefnu Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024.$line$Einnig lögð fram tillaga að breyttu fyrirkomulagi klúbbhússins (þjónustuhúss) á suðurhluta skipulagssvæðisins. Í tillögunni er gert ráð fyrir að stofnuð verði ný lóð, Bakkabraut nr. 3 sem verði um 3.700 m2 að stærð. Gert er ráð fyrir landfyllingu að núverandi bryggju og að núverandi rampi verði lagður niður og í hans stað komi nýr rampi í norðvesturhluta lóðarinnar. Byggingarreitur klúbbhússins breytist og snýst um 90°. Hann stækkar og verður eftir breytingu 60x23 metrar. Atvinnustarfsemi og /eða klúbbhús verður á 1. hæð hússins en á efri hæð þess er gert ráð fyrir íbúðum. Heildarbyggingarmagn eykst og verður eftir breytingu um 3.400 m2. Hámarksvegghæð verður 8 metrar og hámarks þakhæð 13 metrar. Fjöldi bílastæða á lóð verður 38 sbr. uppdrætti dags. 15.12.2014.

Hafnað. Bráðlega hefst skipulagsvinna fyrir svæðið og höfnina. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Anna María Bjarnadóttir og Sigríður Kristjánsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.

05

Skipulagsnefnd - 1250. fundur

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar fyrir hönd lóðarhafa að Bakkabraut nr. 5a-e og 7a-d að breyttu deiliskipulagi fyrir Bakkabraut nr. 3, 5 og 7. Í tillögunni felst að breyta landnotkun á lóðunum að Bakkabraut nr. 5a-e og 7a-d úr atvinnuhúsnæði í blandaða landnotkun íbúða og atvinnustarfsemi og heimila þar með eina íbúð á hverri lóð. Bílastæðum á hverri lóð er fjölgað um eitt stæði. Tillagan er í samræmi við stefnu Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024.$line$Einnig lögð fram tillaga að breyttu fyrirkomulagi klúbbhússins (þjónustuhúss) á suðurhluta skipulagssvæðisins. Í tillögunni er gert ráð fyrir að stofnuð verði ný lóð, Bakkabraut nr. 3 sem verði um 3.700 m2 að stærð. Gert er ráð fyrir landfyllingu að núverandi bryggju og að núverandi rampi verði lagður niður og í hans stað komi nýr rampi í norðvesturhluta lóðarinnar. Byggingarreitur klúbbhússins breytist og snýst um 90°. Hann stækkar og verður eftir breytingu 60x23 metrar. Atvinnustarfsemi og /eða klúbbhús verður á 1. hæð hússins en á efri hæð þess er gert ráð fyrir íbúðum. Heildarbyggingarmagn eykst og verður eftir breytingu um 3.400 m2. Hámarksvegghæð verður 8 metrar og hámarks þakhæð 13 metrar. Fjöldi bílastæða á lóð verður 38 sbr. uppdrætti dags. 15.12.2014.$line$

Frestað.