Huldubraut 7. Grenndarkynning.
Málsnúmer: 1411225
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1264. fundur
Að lokinnni kynningu er lagt fram að nýju erindi Einars Tryggvasonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 24.11.2014. Óskað var eftir að rífa núverandi hús og byggja þess í stað fjórbýli á tveimur hæðum ásamt 34,5m2 sérbílskúrum og geymslum í kjallara.$line$$line$Á kynningartíma kom í ljós að villur eru í útsendum gögnum. Hæðarkótar eru rangir og ekki er rétt farið með nýtingarhlutfallstölur. Hæðir húsa eru ekki réttar auk þess sem svalir húsa eru ekki sýndar. $line$$line$Vegna rangfærslna í útsendum gögnum telst því grenndarkynning dags. 3. júní 2015 ógild.
Skipulagsnefnd samþykkti að ógilda grenndarkynningu dags. 3.6.2015.
02
Skipulagsnefnd - 1255. fundur
Frá byggingarfulltrúa.$line$Lagt fram erindi Einars Tryggvasonar, arkitekts, f.h. lóðarhafa dags. 24.11.2014. Óskað er eftir að rífa núverandi hús og byggja þess í stað fjórbýli á tveimur hæðum ásamt 34,5m2 sérbílskúrum og geymslum í kjallara. Íbúðirnar verða 125m2 að stærð með sérinngangi og svölum til suðurs og norðurs. Heildarbyggingarmagn verður um 712m2 og nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,59 sbr. uppdráttum dags. 22.12.2014.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Huldubrautar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 16, 18 og 20.