Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ráðning fjölmiðlafulltrúa Strætó. Fyrirspurn frá Karen Halldórsdóttur.

Málsnúmer: 1411227

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2754. fundur

Frá Strætó bs., svar við fyrirspurn vegna ráðningar fjölmiðlafulltrúa Strætó.

Lagt fram.$line$$line$Karen Halldórsdóttir þakkaði framlagt svar.

02

Bæjarráð - 2750. fundur

Karen Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Fyrirspurn um ráðningarferli fjölmiðlafulltrúa Strætó bs. Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Hvernig var starfið auglýst, var ráðningarferlið opið og gagnsætt, er um tímabundna ráðningu að ræða?$line$$line$Þess má geta að siðareglur bæjarfulltrúa og stjórnenda í Kópavogi hefðu meinað viðkomandi að taka við þessu starfi, ef viðkomandi væri bæjarfulltrúi eða fyrrum formaður stjórnar Strætó, sbr. 12 gr. Siðareglna stjórnenda og bæjarfulltrúa í Kópavogi. $line$$line$12 gr. Bann við að tryggja sér stöður. Kjörnir bæjarfulltrúar og stjórnendur skulu ekki í störfum sínum leita eftir starfslegum ávinningi í framtíðinni, meðan þeir eru við störf eða eftir að þeir hafa látið af störfum til dæmis í: opinberri stofnun eða einkafyrirtæki sem þeir hafa haft eftirlit með í störfum sínum; opinberri stofnun eða einkafyrirtæki sem þeir hafa stofnað til samningssambands við í störfum sínum; opinberri stofnun eða einkafyrirtæki sem sett var á laggirnar meðan þeir gegndu embætti og samkvæmt því ákvörðunarvaldi sem þeim var falið. $line$Karen Elísabet Halldórsdóttir "