Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Útsvar árið 2015

Málsnúmer: 1411310

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1106. fundur

Lagt er til að útsvarshlutfall verði óbreytt á milli ára og verði 14,48% á árinu 2015. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir lögðu fram eftirfarandi breytingatillögu: $line$"Þann 20. desember 2013 var sett bráðabirgðaákvæði í lög um tekjustofna sveitarfélaga þess efnis að hámarksútsvar hækkaði úr 14,48% í 14,52% á árinu 2014. Samkæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er stefnt að því að framlengja þetta bráðabirgðaákvæði út árið 2015. Lagt er til að bæjarstjórn Kópavogs nýti sér þetta úrræði sem ríkisstjórn Íslands býður uppá og að útsvarið verði 14.52% $line$Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir." $line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19:08. Fundi var fram haldið kl. 19:09.$line$$line$Bæjarstjórn hafnar breytingartillögu um útsvarshlutfall fyrir árið 2015 með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með breytingartillögunni. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Hjördís Ýr Johnson, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson og Sigurjón Jónsson greiddu atkvæði gegn breytingartillögunni en Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddu atkvæði með henni.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir tillögu um útsvarshlutfall verði 14,48% á árinu 2015 með átta atkvæðum en þrír bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Hjördís Ýr Johnson, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Hreiðar Oddsson og Sigurjón Jónsson greiddu atkvæði með tillögunni en Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir og Margrét Júlía Rafnsdóttir greiddu ekki atkvæði.$line$$line$Pétur Hrafn sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir og Sigurjón Jónsson lögðu fram eftirfarandi bókun: $line$"Við undirritaðir bæjarfulltrúar áréttum bókun frá bæjarráðsfundi 6. nóvember og krefjumst þess að Bæjarstjóri Kópavogs leggi fram þær áætlanir sem sviðsstjórar og forsvarsmenn stofnana Kópavogsbæjar lögðu fram við gerð fjárhagsáætlunar 2015. Enn fremur er óskað eftir yfirliti yfir fjárbeiðnir þeirra til sinna sviða og stofnana sem og hugmyndir þeirra varðandi starfsemina fyrir árið 2015. Áætlanir þessar verði lagðar fram á næsta fundi bæjarráðs 27. Nóvember. Það er mikilvægt að þessi gögn liggi fyrir í vinnu bæjarfulltrúa Kopavogs við fjárhagsáætlun bæjarins. $line$Pétur Hrafn sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sigurjón Jónsson"

02

Bæjarráð - 2751. fundur

Frá bæjarstjóra, þar sem lagt er til að útsvarshlutfall verði óbreytt á milli ára og verði 14,48% á árinu 2015.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.