Fundargerðir nefnda. Afgreiðsla bæjarstjórnar 25. nóvember 2014
Málsnúmer: 1411321
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1106. fundur
Lagðar fram fundargerðir bæjarráðs frá 13. og 20. nóvember, byggingarfulltrúa frá 13. nóvember, félagsmálaráðs frá 17. nóvember, forsætisnefndar frá 20. nóvember, forvarna- og frístundanefndar frá 12. nóvember, hafnarstjórnar frá 10. nóvember, leikskólanefndar frá 13. nóvember, lista- og menningarráðs frá 20. nóvember, skipulagsnefndar frá 17. nóvember, skólanefndar frá 17. nóvember, stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 31. október, stjórnar Sorpu bs. frá 7. nóvember og stjórnar Strætó bs. frá 31. október.
Lagt fram.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17:20. Fundi var fram haldið kl. 17:25.$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 17:40. Fundi var fram haldið kl. 17:45.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun: $line$"Í fundargerð frá fundi leikskólastjóra kemur fram: Starfsmannamál: Erfiðlega hefur gengið að manna leikskólana að fullu, óhæfir umsækjendur og ástandið í leikskólunum því oft óviðunandi. Vantar mun fleiri faglærða og staðan í mörgum leikskólum alvarleg. Bæjarfullrúar Samfylkingarinnar vekja athygli á að í fjárhagsáætlun virðist ekkert fjármagn vera eyrnarmerkt starfsmannamálum í leikskólum og úrbótum þar að lútandi þrátt fyrir að leikskólastjórar bæjarins meti stöðuna alvarlega. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar munu leggja fram tillögur til úrbóta við fjárhagsáætlun Kópavogs. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir."$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Fulltrúar meirihlutans árétta að á fyrri hluta ársins var samþykkt í bæjarstjórn sóknaráætlun í fjölgun leikskólakennara sem hafa það að markmiði að; laða að nýja leikskólakennara, halda góðum kennurum í störfum hjá bænum og fjölga nemendum í leikskólafræðum. Þær leiðir sem vinnuhópurinn lagði til eru; launatengdar leiðir til að umbuna fyrir störf af faglegum toga, leiðir til að kynna og efla ímynd leikskóla Kópavogs og styrking til náms í leikskólafræðum. Til verkefnisins verða lagðar 36.100.000 á árinu 2015. Þá var verið að samþykkja samninga fyrir ófaglærða á leikskólum með sérstökum hækkunum umfram önnur sveitarfélög."$line$$line$Ása Richardsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson og Margrét Júlía Rafnsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Í grein 1.12 undir kaflanum Mannréttindi og mannauður ? í nýsamþykktri stefnumótun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014 ? 2018 segir: Sveitarfélög verði samfélög án aðgreiningar. Stefnt skal að því að jafnréttis- og jafnræðissjónarmið verði fléttuð inn í alla stefnumótun sveitarfélaganna og í lagasetningu sem snýr að sveitarfélögunum. Stefnt skal að því að eyða allri mismunun, svo sem vegna búsetu, aldurs, kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.$line$Í fjárhagsætlun ársins 2015 er gert ráð fyrir 10 milljónum króna til stefnumörkunar samkvæmt málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Bjartar framtíðar. Mikilvægt er að jafnréttis- og jafnræðissjónarmið séu fléttuð inn í alla stefnumörkun á vegum Kópavogsbæjar. $line$Ása Richardsdóttir Pétur Hrafn Sigurðsson Margrét Júlía Rafnsdóttir"