Til baka í fundargerðir
Urðarhvarf 2, Hádegismóar ehf. Beiðni um umsögn vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1411426
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2754. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 3. desember, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi frá 26. nóvember, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um umsókn Hádegismóa ehf., kt. 540605-0920, Hlíðarhjalla 67, um nýtt rekstrarleyfi til að mega reka hótel í flokki II, undir heitinu Bluemountain Apartments að Urðarhvarfi 2, 203 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007.
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning og afgreiðslutími er í samræmi við gildandi skipulag.