Leikskóladeild-Aðalþing,skipulagsdagar 2014-2015
Málsnúmer: 1412050
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 56. fundur
Lagt fram bréf foreldra. Starfsmönnum Menntasviðs falið að svara bréfinu.
02
Bæjarráð - 2755. fundur
Lagt fram erindi leikskólans Aðalþings, þar sem óskað er undanþágu frá samþykktum skipulagsdögum leik- og grunnskóla. Nefndin sér sér ekki fært að heimila umrædda beiðni og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu leikskólanefndar.
03
Leikskólanefnd - 53. fundur
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti á fundi sínum dags. 12. febrúar 2013 að skipulagsdagar leik- og grunnskóla skyldu samræmdir fyrir skólaárið 2014-2015. Leikskólanefnd ber að framfylgja þeirri samþykkt. $line$Beiðnir um undanþágur ber að leggja fyrir leikskólanefnd til samþykktar. Sbr. 8.gr. þjónustusamnings við leikskólann Aðalþing ber rekstraraðilum að óska skriflega eftir heimild leikskólanefndar til að víkja frá stefnumörkun yfirvalda leikskólamála. Þar sem leikskólinn gerði það ekki sér leikskólanefnd sér ekki fært að heimila skipulagsdaga á umræddum tíma og vísar erindinu til bæjarráðs.