Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Þrymsalir 1, kæra vegna höfnunar á breyttu deiliskipulagi. Úrskurður.

Málsnúmer: 1412061

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 1. fundur

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 120/2014 þar sem kærð var ákvöðrun bæjarstjórnar Kópavogs frá 28. október 2014 að hafna beiðni um breytingu á deiliskipulagi fyrir Þrymsali 1. Var kröfu kæranda hafnað.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2851. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 15. desember, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 120/2014 þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að hafna beiðni kæranda um breytingu á deiliskipulaginu Hnoðraholt-Smalaholt vegna Þrymsala 1 þar sem óskað var eftir breytingu á skráningu hússins úr einbýlshúsi í tvíbýlishús.

Lagt fram.