Menntasvið-leikskóladeild, styrkir til leikskólakennaranáms.
Málsnúmer: 1412218
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 118. fundur
Deildarstjóri leikskóladeildar upplýsir um áhuga starfsmanna leikskóla til að sækja sér menntunar í leikskólakennarafræðum og fjölda starfsmanna sem þegar er á styrk.
Deildarstjóri leikskóla upplýsti um hve vel hefur gengið hjá stjórnendum leikskóla að hvetja starfsfólk til náms í leikskólakennarafræðum.
02
Leikskólanefnd - 87. fundur
Lagt fram til upplýsingar.
Lagt fram til kynningar.
03
Bæjarráð - 2801. fundur
Frá deildarstjóra leikskóladeildar, dags. 15. desember, lagðar fram til samþykktar reglur um námsstyrki til leikskólakennara sem samþykktar voru á fundi leikskólanefndar þann 10.12.2015.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum reglur um námsstyrki til leikskólakennara í leikskólum Kópavogs.
04
Leikskólanefnd - 65. fundur
Leikskólanefnd mælir með því að settar verði samræmdar reglur hjá Kópavogsbæ um endurgreiðslur vegna námstengdra styrkja hverskonar og launaðra námsleyfa.$line$Gunnlaugur Snær Ólafsson og Jóhanna Heiðdal, fulltrúar Sjálfstæðisflokks í leikskólanefnd leggja fram eftirfarandi bókun:$line$" Það ber að fagna nýjum reglum um námsstyrki Kópavogs, þó er ljóst að ekki liggja fyrir skýr skilyrði um endurgreiðslur þeirra fjármuna sem veittir eru standi styrkþegi ekki við gerðan samning. Umræddir fjármunir eru afhentir Kópavogsbæ af bæjarbúum til þess að tryggja þjónustu og er því ekkert eðlilegra en að Kópavogsbær tryggir að umræddir fjármunir nýtist bæjarbúum sem best. Það er í fyrsta lagi óljóst hvort endurgreiðsla sé að nafnvirði eða raunvirði, einnig er óljóst hvort launatengd gjöld séu talin til kostnaðar. Farið er því fram á frekari umfjöllun um málið í Bæjarráði sem fer með fjármálastjórn".
05
Leikskólanefnd - 64. fundur
Frestað til næsta fundar.