Ársreikningur Kópavogsbæjar 2014 - seinni umræða.
Málsnúmer: 1501088
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1116. fundur
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum samantekins ársreiknings Kópavogsbæjar 2014, A - hluta fyrirtækja samstæðunnar, sem eru Eignasjóður Kópavogsbæjar, Byggingarsjóður MK og Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar, svo og B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar: Fráveitu Kópavogsbæjar, Vatnsveitu Kópavogsbæjar og Húsnæðisnefndar Kópavogsbæjar ásamt ársreikningum B - hluta fyrirtækjanna Tónlistarhúss Kópavogs og Hafnarsjóðs Kópavogs, sem höfðu verið samþykktir í viðkomandi stjórn/nefnd. Einnig var lagður fram samþykktur ársreikningur Vatna ehf., Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. og félagsins Músik og saga ehf. Þá var lögð fram skýrsla löggiltra endurskoðenda bæjarins. Lagði bæjarstjóri til að samantekinn ársreikningur Kópavogsbæjar 2014 ásamt fylgigögnum yrði samþykktur. Bæjarstjóri lagði fram til staðfestingar bæjarstjórnar ársreikning Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, sem þegar hefur verið samþykktur í stjórn sjóðsins.
Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ársreikningur bæjarins ber vott um að fjármál bæjarins séu í traustum skorðum enda verið sátt um grundvallaratriði í fjármálastjórn frá Hruni. Á hitt er að líta að lækkun skuldahlutfalls er að mestu orsökuð af fjölgun íbúa fremur en beinni lækkun skulda. Það er einnig vert að benda á að með sama hraða í niðurgreiðslu skulda tæki hundrað ár að borga niður skuldir bæjarins. Á þessu þarf að taka. VGF munu við gerð fjárhagsáætlunar benda á leiðir til að breyta þessu, m.a. með betri nýtingu tekjustofna og samræðum við ríkisvaldið um breyttar forsendur í fjármálum sveitarfélaga.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Ársreikningur Kópavogsbæjar sýnir að bæjarfélagið stendur traustum fótum og er ljóst að framtíðarhorfur eru góðar og margvíslegir möguleikar á frekari uppbyggingu. Brýnt er að Kópavogsbær komi að uppbyggingu félagslegra íbúða, almennra leiguíbúða og búseturéttaríbúða. Þar kreppir verulega að. $line$Það blikka þó viðvörunarljós í ársreikningi Kópavogsbæjar. Afgangur af rekstri er 4.534.000 krónur en gert var ráð fyrir 450 milljónum króna. Niðurstaðan er hundraðfallt lakari en áætlun gerir ráð fyrir. Þetta gerist þrátt fyrir hagstætt rekstrarumhverfi Kópavogsbæjar. Flestir kostnaðarliðir fara fram úr fjárhagsáætlun eða frá 2% upp í 12% sem gefur Bjartri framtíð og Sjálfstæðisflokki ekki háa einkunn þar. Athygli er vakin á ábendingu endurskoðenda vegna stefnu á hendur Kópavogsbæ af hálfu hluta erfingja Vatnsenda. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar þakka starfsfólki Kópavogsbæjar góð störf. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir"$line$$line$Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ársreikningur Kópavogsbæjar ber þess merki að bærinn er í sókn, fólksfjölgun með tilheyrandi tekjuaukningu. Rekstur A hluta bæjarins er hins vegar undir væntingum einkum vegna hærri greiðslna vegna lífeyrisskuldbindinga. Skuldir bæjarins halda áfram að lækka en eru því miður of háar og því mikilvægt að aðhalds sé gætt í rekstri bæjarfélagsins. Framtíðarhorfur í rekstri bæjarins eru góðar með væntanlegri fólksfjölgun, sérstaklega í ljósi þess að miklum fjármunum hefur á undanförnum árum verið varið í uppbyggingu innviða, m.a. í skóla- og íþróttamálum.$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 16.49. Fundi var fram haldið kl. 17.05.$line$$line$Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$$line$"Það er rétt sem kemur fram í bókunum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknarflokks og Vg að fjármál bæjarins standa traustum fótum og skuldir bæjarins halda áfram að lækka og bæjarbúum fjölgar. Fá sveitarfélög, ef nokkurt ,af stóru sveitafélögunum hefur lækkað skuldahlutfallið með sama hraða og Kópavogur og sýna góð kjör á lánamarkaði, eins og nýleg endurfjármögnun gefur dæmi um, hversu mikið traust er borið til fjárhagslegs styrks bæjarins. $line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Jón Finnbogason, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Forseti bar undir fundinn til staðfestingar ársreikning Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Bæjarstjórn staðfestir ársreikninginn með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Aðalsjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Eignasjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Byggingarsjóðs MK. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning A - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Húsnæðisnefnd Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Tónlistarhúss Kópavogs. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Hafnarsjóðs Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Fráveitu Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning B - hluta fyrirtækja Kópavogsbæjar - Vatnsveitu Kópavogsbæjar. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning Vatna ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning Fjarskiptafélagsins Rjúpnahæð ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir atkvæði ársreikning félagsins Músik og saga ehf. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum. $line$$line$Forseti bar undir atkvæði í heild sinni samantekinn Ársreikning Kópavogsbæjar, þ. e. Ársreikning Kópavogsbæjar, A - og B - hluta fyrirtækja hans ásamt framlögðum ársreikningum B - hluta fyrirtækja og öðrum fylgigögnum. Samþykktur með 11 greiddum atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2773. fundur
Frá innanríkisráðuneyti, dags. 22. apríl, lagt fram bréf vegna skila á ársreikningi 2014 og áréttað að honum skuli lokið eigið síðar en 15. maí ár hvert og skilað í gegnum vefskilakerfi Hagstofu Íslands, ásamt skýrslu endurskoðenda.
Lagt fram.
03
Bæjarstjórn - 1115. fundur
Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2014.$line$Bæjarráð samþykkir ársreikning Kópavogsbæjar fyrir árið 2014 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2014 er undirritaður og tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreiknings Kópavogsbæjar, A og B hluta. Greindi hann frá rekstrarniðurstöðum og helstu frávikum. Þannig skýrði hann út sjóðsstreymi og niðurstöður Efnahagsreiknings. Einnig var lagður fram ársreikningur LSK til kynningar. Þá lagði bæjarstjóri til að ársreikningi Kópavogsbæjar yrði vísað til seinni umræðu.$line$$line$Kl. 17.25 vék Birkir Jón Jónsson af fundi og tók Sigurjón Jónsson sæti hans á fundinum.$line$$line$Bæjarstjórn vísar afgreiðslu ársreiknings Kópavogsbæjar fyrir árið 2014 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins til seinni umræðu með ellefu atkvæðum.
04
Bæjarráð - 2772. fundur
Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2014.
Bæjarráð samþykkir ársreikning Kópavogsbæjar fyrir árið 2014 ásamt ársreikningi stofnana bæjarins samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2014 er undirritaður og er tilbúinn til endurskoðunar og til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Ingólfur Arnarson fjármálastjóri og Lárus Finnbogason endurskoðandi sátu fundinn undir þessum lið.$line$$line$Pétur Hrafn kemur til fundarins kl. 7.38