Bæjarlind 6, SPOT. Umsókn um tímabundið áfengisleyfi. Beiðni um umsögn
Málsnúmer: 15011086
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2760. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 27. janúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 27. janúar, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um umsókn ROSAAM/SPOT, kt. 631008-0110, um tækifærisleyfi til að mega hafa lengri opnunartíma aðfararnótt mánudagsins 2. febrúar 2015, til kl: 04:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Árni Björnsson, kt. 230251-3989.$line$
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag. Afgreiðslutími sem óskað er eftir er umfram það sem kemur fram í 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir. Þar er gert ráð fyrir opnunartíma til 23:30 þennan dag, með þeim fyrirvara að sveitarfélag geti ákveðið annað.