Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Svar við athugasemdum og ábendingum Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 1501129

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 18. fundur

Lagt fram erindi erindi skipulagsstjóra Garðabæjar fh. bæjarstjórnar, dags. 7. nóvember 2017 þar sem m.a. kemur fram að 5. október 2017 hafi bæjarstjórn Garðabæjar samþykkt tillögu að aðalskipulagi garðabæjar 2016-2030 skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við afgreiðslu tillögunnar var samþykkt tillaga að svörum við þeim athugasemdum og umsögnum sem borist höfðu á auglýsingartíma sem stóð frá 8. maí til 19. júní 2017.

Í greinargerð dags. 1. nóvember 2017 umsögn 9 koma fram viðbrögð bæjaryfirvalda við athugasemdum og ábendingum Kópavogsbæjar dags. 14. júní 2017.

Lagt fram.

02

Skipulagsráð - 10. fundur

Lagðar fram athugasemdir og ábendingar við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sbr. erindi skipulagsstjóra Kópavogs dags. 14. júní 2017. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 19. júní 2017.

Skipulagsráð samþykkir erindi skipulagsstjóra.

03

Bæjarráð - 2871. fundur

Frá skipulagsstjóra Garðarbæjar, dags. 10. maí, lögð fram auglýsing tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Athugasemdafrestur er til 19. júní nk. og er óskað eftir umsögn Kópavogsbæjar um tillöguna.

Bæjarráð vísar málinu til skipulagsráðs.

04

Skipulagsnefnd - 1286. fundur

Lögð fram forkynning á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, uppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlögð drög að tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar en áskilur sér rétt til að að gera athugasemdir við aðalskipulagið þegar það verður kynnt á síðari stigum.

05

Skipulagsnefnd - 1252. fundur

Lagt fram bréf frá skipulagsstjóra Garðabæjar dags. 5.1.2015 þar sem óskað er umsagnar Kóapavogsbæjar um lýsingu á tillögu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir 17.2.2014.

Lagt fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu. Kópavogur áskilur sér rétt til að gera athugasemdir þegar umrædd tillaga verður kynnt með formlegum hætti á síðari stigum.

06

Bæjarráð - 2758. fundur

Frá Garðabæ, dags. 5. janúar, tillaga að lýsingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar til umsagnar.