Urðarhvarf 4. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1501561
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1116. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta f.h. lóðarhafa að Urðarhvarfi 4, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Skipulagsnefnd hafnar tillögunni þar sem óskað var eftir hækkun um tvær hæðir. Skipulagsnefnd samþykkti umsögn skipulags- og byggingardeildar þar sem komið er til móts við innsendar athugasasemdir og samþykkti því hækkun um eina hæð. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu, en samþykkir hækkun um eina hæð.
02
Bæjarráð - 2774. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta f.h. lóðarhafa að Urðarhvarfi 4, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Skipulagsnefnd hafnar tillögunni þar sem óskað var eftir hækkun um tvær hæðir. Skipulagsnefnd samþykkti umsögn skipulags- og byggingardeildar þar sem komið er til móts við innsendar athugasasemdir og samþykkti því hækkun um eina hæð. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1258. fundur
Lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta dags. 15.1.2015, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Á fundi skipulagsnefndar 23.3.2015 var málinu frestað og skipulags- og byggingardeild falið að vinna áfram að málinu.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn um framkomnar athugasemdir dags. 4.5.2015
Skipulagsnefnd hafnaði kynntri tillögu þar sem óskað var eftir hækkun um tvær hæðir. Skipulagsnefnd samþykkti umsögn skipulags- og byggingardeildar þar sem komið er til móts við innsendar athugasasemdir og samþykkti því hækkun um eina hæð. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1256. fundur
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju erindi ASK arkitekta dags. 15.1.2015, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Á fundi skipulagsnefndar 19.1.2015 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Kynningu lauk 23.3.2015. Athugasemd barst frá Ólafi Páli Snorrasyni, Urðarhvarfi 2, dags. 18.3.2015; frá Hjörleifi Kvaran, hdl., f.h.lóðarhafa Urðarhvarfs 2, dags. 23.3.2015.
Frestað. Skipulagsnefnd fól skipulags- og byggingardeild að vinna áfram að málinu.
05
Bæjarstjórn - 1109. fundur
Lagt fram erindi ASK arkitekta dags. 15.1.2015, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Í breytingunni felst að húsið hækkar um tvær hæðir, efsta hæðin verður inndregin og húsið verður því 7 hæðir + kjallari. Aukning á byggingarmagni er 530m2 og við breytingu hækkar nýtingarhlutfall úr 0,8 í 0,93. Bílastæði á lóð eru 99 en með stækkun verða 114 stæði sé miðað við 1 stæði pr. 36 m2 sbr. uppdráttum dags. 18.8.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa framlagða tillögu með 9 atkvæðum. Tveir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að tillöguna samþykktu Ármann Kr. Ólafsson, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra S Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Jón Finnbogason, Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson. Ása Richardsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson greiddu ekki atkvæði.
06
Bæjarráð - 2759. fundur
Lagt fram erindi ASK arkitekta dags. 15.1.2015, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Í breytingunni felst að húsið hækkar um tvær hæðir, efsta hæðin verður inndregin og húsið verður því 7 hæðir + kjallari. Aukning á byggingarmagni er 530m2 og við breytingu hækkar nýtingarhlutfall úr 0,8 í 0,93. Bílastæði á lóð eru 99 en með stækkun verða 114 stæði sé miðað við 1 stæði pr. 36 m2 sbr. uppdráttum dags. 18.8.2014.$line$Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
07
Skipulagsnefnd - 1252. fundur
Lagt fram erindi ASK arkitekta dags. 15.1.2015, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Urðarhvarfs 4. Í breytingunni felst að húsið hækkar um tvær hæðir, efsta hæðin verður inndregin og húsið verður því 7 hæðir + kjallari. Aukning á byggingarmagni er 530m2 og við breytingu hækkar nýtingarhlutfall úr 0,8 í 0,93. Bílastæði á lóð eru 99 en með stækkun verða 114 stæði sé miðað við 1 stæði pr. 36 m2 sbr. uppdráttum dags. 18.8.2014.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Anna María Bjarnadóttir, Guðmundur Gísli Geirdal, Kristinn Dagur Gissurarson og Margrét Júlía Rafnsdóttir samþykktu að setja framlagða tillögu í auglýsingu.$line$$line$Ása Richardsdóttir hafnaði að auglýsa framlagða tillögu.