Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga um að Kársnes verði 30 km svæði. Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni.

Málsnúmer: 1501575

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2758. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi tillögu:$line$"Bæjarráð samþykkir að beina því til umhverfis- og samgöngunefndar að meta hvort kostur sé að gera Kársnesið að 30 km hraða svæði.$line$Greinargerð:$line$Örfáar götur á Kársnesi eru nú með hærri hámarkshraða en 30 km og umferðarþungi hvergi svo mikill að krefjast hærri hraða. Hverfið er að stærstum hluta til íbúðahverfi og ólíklegt að sú atvinnustarfsemi sem þar er þoli ekki lægri hraða. Í umhverfislegu, vistvænu tilliti og m.t.t. öryggis gangandi vegfarenda myndi slík breyting einnig vera til góðs.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.