Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1111. Fundur haldinn 24. febrúar 2015.

Málsnúmer: 1502015F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1255. fundur

1502014F - Bæjarráð, dags. 19. febrúar 2015. 2763. fundur bæjarráðs í 34. liðum. Lagt fram. $line$$line$1412151 - Austurkór 64. Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd samþykkti erindið með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað erindinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$$line$1411115 - Álfhólsvegur 111. Fjölgun íbúða. $line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða breytingartillögu dags. 16.2.2015 með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum. $line$ $line$1502355 - Gulaþing 25. Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindi til bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu. $line$ $line$1412240 - Hlíðarvegur 29. Fyrirkomulag bílastæða. $line$Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði því til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu. $line$$line$1409240 - Hlíðarvegur 57. Kynning á byggingarleyfi. $line$Skipulagsnefnd samþykkti að afturkalla fyrri samþykkt sína frá 19.1.2015. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og afturkallar sömuleiðis sína samþykkt frá 27.1.2015. $line$$line$1410421 - Lundur 14-18. Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umsögn dags. 16.2.2015. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagnefndar með 11 atkvæðum.