Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Óskað eftir samstarfi um Sumarstarf ungra tónlistarmanna 2015.

Málsnúmer: 1502055

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2772. fundur

Frá deildarstjórum íþróttadeildar og frístunda- og forvarnardeildar, dags. 15. apríl, lögð fram umsögn vegna beiðni Maximus Musicus ehf. um sérhæfða sumarvinnu fyrir unga tónlistarnema. Ekki er svigrúm innan fjárheimilda sviðsins, sem eru áætlaðar vegna sumarstarfa 2015, til að koma til móts við erindið.

Bæjarráð hafnar erindinu með þremur atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun:$line$"Vegna beiðnar Maximus Musicus ehf. um samstarf vegna sérhæfðar sumarvinnu fyrir unga tónlistarnema lýsum við yfir verulegum vonbrigðum yfir því viljaleysi sem fram kemur hjá bæjarfulltrúum Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks. Tillagan felur í sér að gefa ungu og efnilegu tónlistarfólki í Kópavogi sem hefur skarað fram úr í sinni listgrein tækifæri til að stunda sína listgrein í sumar undir stjórn færustu kennara og komi sú ástundun í stað vinnuskyldu í vinnuskóla Kópavogsbæjar. Það að halda því fram að ekki séu fjárheimildir til verkefnisins stenst enga skoðun, þar sem Kópavogsbær hefur samþykkt að allir unglingar sem sækja um unglingavinnu fái vinnu, þar með taldir þeir 4 - 6 unglingar sem valdir yrðu í verkefnið. Samstarfið hefur því engin áhrif á fjárhag Kópavogsbæjar. $line$Pétur Hrafn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. $line$Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna$line$Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks"$line$$line$Bókun$line$"Varðandi umsögn deildarstjóra íþróttadeildar og frístundadeildar þá vilja undirrituð koma því á framfæri að þessi umsókn snýst ekki krónur og aura, enda búið að ákveða fjármagn til Vinnuskóla Kópavogs. $line$Gæta verður að jöfnum tækifærum þegar kemur að undanþágum frá vinnuskyldu Vinnuskólans. Jafnvel þó svo að einkafyrirtæki hafi göfug markmið og vilji fá til liðs við sig afreksfólk þá þarf sveitafélagið að gæta að því að jafnræði gildi á milli ungmenna í Vinnuskólanum. $line$Við lýsum yfir undrun okkar á afstöðu vinstri flokkanna í bæjarstjórn Kópavogs varðandi að veita ákveðnum hópum og einstaklingum forréttindi innan Vinnuskólans. $line$$line$Karen Elísabet Halldórsdóttir $line$Theódóra Þorsteinsdóttir$line$Hjördís Ýr Johnson$line$Ármann Kr Ólafsson"$line$$line$Bókun:$line$"Kópavogsbær hefur um áratuga skeið stutt við bakið á afreksfólki í listum og íþróttum án þess að líta á það sem sérstök forréttindi þeirra sem njóta. $line$Hér er því um athyglisverða stefnubreytingu meirihlutans að ræða. $line$Samfylking, Framsóknarflokkur og Vinstri grænir og félagshyggjufólk munu hér eftir sem hingað til standa vörð um stuðning við ungt og efnilegt fólk í Kópavogi.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar$line$Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna$line$Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks"$line$$line$$line$Bókun:$line$"Við tökum heilshugar undir að Kópavogsbær hafi alltaf stutt afreksfólk í listum og íþróttum og mun halda því áfram. Þessi beiðni lýtur hins vegar að vinnuskóla Kópavogs og ber að afgreiða hana sem slíka.$line$Karen Elísabet Halldórsdóttir $line$Theódóra Þorsteinsdóttir$line$Hjördís Ýr Johnson$line$Ármann Kr Ólafsson"

02

Bæjarráð - 2770. fundur

Erindi frá Maximus Musicus ehf. þar sem óskað er eftir samstarfi um sérhæfða sumarvinnu við tónlist fyrir unga tónlistarnema á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarráð vísar erindinu til menntasviðs til umsagnar.

03

Lista- og menningarráð - 39. fundur

Ráðið getur ekki orðið við styrkbeiðninni.