Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hafnarbraut 12. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1502119

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1136. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lögð fram útfærsla Arkís að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12, dags. 11.4.2016, sbr. meðfylgjandi greinargerð dags. 11.4.2016. Arnar Þór Jónsson, frá Arkís, gerði grein fyrir bygginaráformum. Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í samþykktu deiliskipulagi fyrir Hafnarbraut 12 og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi þann 14. apríl sl. Bæjarráð vísaði erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2818. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lögð fram útfærsla Arkís að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12, dags. 11.4.2016, sbr. meðfylgjandi greinargerð dags. 11.4.2016. Arnar Þór Jónsson, frá Arkís, gerði grein fyrir bygginaráformum. Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í samþykktu deiliskipulagi fyrir Hafnarbraut 12 og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi þann 14. apríl sl.$line$

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Bæjarráð - 2817. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lögð fram útfærsla Arkís að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12, dags. 11.4.2016, sbr. meðfylgjandi greinargerð dags. 11.4.2016. Arnar Þór Jónsson, frá Arkís, gerði grein fyrir bygginaráformum. Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í samþykktu deiliskipulagi fyrir Hafnarbraut 12 og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

04

Skipulagsnefnd - 1275. fundur

Lögð fram útfærsla Arkís að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12, dags. 11.4.2016, sbr. meðfylgjandi greinargerð dags. 11.4.2016.

Arnar Þór Jónsson, frá Arkís, gerði grein fyrir bygginaráformum.$line$$line$Skipulagsnefnd taldi framlögð byggingaráform vera í samræmi við þau viðmið sem sett voru fram í samþykktu deiliskipulagi fyrir Hafnarbraut 12 og veitir lóðarhafa heimild til að skila gögnum til byggingarfulltrúa.$line$$line$Skipulagsnefnd samþykkti tillögu að breyttu deiliskipulagi með tilvísan til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

05

Bæjarstjórn - 1122. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 25. ágúst, lögð fram að nýju tillaga Atelier arkitekta f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12. Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa framlagða tillögu og bárust engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísari erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

06

Bæjarráð - 2785. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 25. ágúst, lögð fram að nýju tillaga Atelier arkitekta f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12. Skipulagsnefnd samþykkti að auglýsa framlagða tillögu og bárust engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

07

Skipulagsnefnd - 1264. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Atelier arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. í apríl 2015 að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12. Á fundi skipulagsnefndar 4.5.2015 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Kynning stóð frá 26.5.2015 til 9.7.2015. Engar athugasemdir bárust við kynnta tillögu.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson vék af fundi undir þessum lið.

08

Bæjarstjórn - 1116. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga Atelier arkitekta f.h. lóðarhafa að Hafnarbraut 12 um breytt deiliskipulag fjölbýlishúsa sem eiga að rísa á lóðinni. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa framlagða tillögu með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

09

Bæjarráð - 2774. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga Atelier arkitekta f.h. lóðarhafa að Hafnarbraut 12 um breytt deiliskipulag fjölbýlishúsa sem eiga að rísa á lóðinni. Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa framlagða tillögu með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

10

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Lögð fram tillaga Atelier arkitekta, f.h. lóðarhafa, dags. í apríl 2015 að breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12. Heildarfjöldi íbúða helst óbreyttur miðað við gildandi deiliskipulag þ.e. 130 íbúðir. Heildarbyggingarmagn er áætlað um 24.000m2 sem er 2000m2 minna en gildandi deiliskipulag heimilar og nýtingarhlutfall verður 3,1 í stað 3,5 sbr. uppdráttum dags. í apríl 2015. Í gildandi deiliskipulagi er miðað við að á svæðinu rísi tveggja til fimm hæða fjölbýlishús með inndregna sjöttu hæð sem snýr að Vesturvör og með bílageymslu að hluta á tveimur hæðum neðanjarðar. Í tillögu að breyttu deiliskipulagi er miðað við að á svæðinu rísi fjölbýlishús á einni til fjórum hæðum með inndreginni fimmtu hæð að hluta. Hluti þakforms fer yfir hámarkshæð í gildandi deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

11

Skipulagsnefnd - 1257. fundur

Lögð fram drög að deiliskipulagi (forsögn) frá Atelier arkitektum, f.h. lóðarhafa, dags. í apríl 2015 á breyttu deiliskipulagi Hafnarbrautar 12 sem afmarkast af Nesvör, Hafnarbraut, Vesturvör og vesturmörkum lóða við Kársnesbraut 104 og 106. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var samþykkt að breyta texta í skilmálum sbr. erindi lóðarhafa dags. 2.2.2015. Skipulagsnefnd samþykkti einnig að á grundvelli framlagðs erindis yrði unnin forsögn að breyttu deiliskipulagi til afgreiðslu í skipulagsnefnd á lóðinni Hafnarbraut 12.$line$$line$Í framlögðum drögum að deiliskipulagi (forsögn) kemur fam að heildarfjöldi íbúða helst óbreyttur miðað við gildandi deiliskipulag eða 130 íbúðir. Íbúðir verða 55-150m2 að stærð, heildarbyggingarmagn er áætlað um 24.000m2 sem er 2000m2 minna en gildandi deiliskipulag heimilar og nýtingarhlutfall verður 3,1 í stað 3,5 sbr. uppdráttum dags. 20.4.2015. Í gildandi deiliskipulagi er miðað við að á svæðinu rísi 2 til 5 hæða fjölbýlishús með inndregna 6 hæð sem snýr að Vesturvör og með bílageymslu að hluta á tveimur hæðum neðanjarðar. Í drögum að nýju deiliskipulagi er miðað við að ný byggð verði allt frá 1 hæð í fjórar hæðir með inndreginni 5 hæð. Hluti þakforms fer yfir hámarkshæð í gildandi deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða forsögn og að unnin verði deiliskipulagstillaga á grundvelli forsagnar.

12

Skipulagsnefnd - 1254. fundur

Frá bæjarráði:$line$Lagt fram erindi Upphafs fasteignafélags dags. 2.2.2015 þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi lóðarinnar Hafnarbraut 12. Í breytingunni felst að texta í skilmálum verði sbr. erindi dags. 2.2.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti á grundvelli framlagðs erindis að unnin verði forsögn (lýsing) að breyttu deiliskipulagi til afgreiðslu í skipulagsnefnd á lóðinni Hafnarbraut 12 (áður Hafnarbraut 12, 14 og Vesturvör 25, 27).

13

Bæjarráð - 2761. fundur

Frá Upphafi, dags. 2. febrúar, óskað eftir breytingum á skilgreiningum íbúða fyrir aldraða.

Bæjarráð vísar erindinu til skipulagsnefndar til úrvinnslu.