Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hamraborg 11. Kynning á byggingarleyfi.

Málsnúmer: 1502232

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1117. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. maí, lagt fram að nýju erindi Alark, f.h. lóðarhafa að Hamraborg 11, þar sem óskað er eftir að breyta 2. og 3. hæð hússins í gistiheimili. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2775. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 19. maí, lagt fram að nýju erindi Alark, f.h. lóðarhafa að Hamraborg 11, þar sem óskað er eftir að breyta 2. og 3. hæð hússins í gistiheimili. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1259. fundur

Lagt fram að nýju erindi Alark, f.h. lóðarhafa, dags. 3.2.2015 þar sem óskað er eftir að breyta 2. og 3. hæð hússins í gistiheimili sbr. uppdráttum dags. 3.2.2015. Á fundi skipulagsnefndar 4.5.2015 var erindinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.$line$$line$Lagt fram ásamt umsögn dags. 18.5.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu ásamt umsögn með tilvísan til skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Lagt fram að nýju erindi Alark dags. 3.2.2015 þar sem óskað er eftir að breyta 2. og 3. hæð hússins í gistiheimili sbr. uppdráttum dags. 3.2.2015. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 9, 22 og 24; Álfhólsvegar 2, 2A, 4, 4A og 15A.$line$$line$Kynningu lauk 27.4.2015. Athugasemd barst frá Lárentsínusi Kristjánssyni, hrl., f.h. eigenda Hamraborgar 11, dags. 18.3.2015 ásamt fylgiskjölum; frá Ahmed El Bedawey og Iwona Zofia Lempicka, Hamraborg 24, dags. 21.4.2015; frá íbúum Hamraborgar 24, dags. 13.4.2015 frá Björgvin Þór Björgvinssyni og Öldu Sveinsdóttur, Álfhólsvegi 2, dags. 27.4.2015.

Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.

05

Skipulagsnefnd - 1254. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Alark dags. 3.2.2015 þar sem óskað er eftir að breyta 2. og 3. hæð hússins í gistiheimili sbr. uppdráttum dags. 3.2.2015.$line$$line$Þá lagður fram úrskurður frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála dags. 30.1.2015 vegna kæru á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 15.6.2014, breytt 27.11.2014, um að veita leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi og innrétta gistiheimili að Hamraborg 11.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Hamraborgar 9, 22 og 24; Álfhólsvegar 2, 2A, 4, 4A og 15A.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.