Fífuhvammur 25. Grenndarkynning.
Málsnúmer: 1502354
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1127. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 10. nóvember, lagt fram af byggingarfulltrúa að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var málinu frestað. Kynningu lauk 4.5.2015. Athugasemd barst frá Lárentsínusi Kristjánssyni, hrl., f.h. íbúa Fífuhvamms 27, dags. 30.4.2015. Lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 4.11.2015. Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri tillögu með vísan í minnisblað lögfræðisviðs og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með níu atkvæðum gegn einu og hafnar erindinu. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi atkvæði gegn tillögu skipulagsnefndar og Kristinn Dagur Gissurarson greiddi ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2796. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 10. nóvember, lagt fram af byggingarfulltrúa að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var málinu frestað. Kynningu lauk 4.5.2015. Athugasemd barst frá Lárentsínusi Kristjánssyni, hrl., f.h. íbúa Fífuhvamms 27, dags. 30.4.2015. Lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 4.11.2015. Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri tillögu með vísan í minnisblað lögfræðisviðs og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1268. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var málinu frestað. Kynningu lauk 4.5.2015. Athugasemd barst frá Lárentsínusi Kristjánssyni, hrl., f.h. íbúa Fífuhvamms 27, dags. 30.4.2015.$line$$line$Lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 4.11.2015.
Skipulagsnefnd hafnaði framlagðri tillögu með vísan í minnisblað lögfræðisviðs. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Anna María Bjarnadóttir, Helga Elínborg Jónsdóttir og Guðmundur Geirdal voru samþykk því að hafna tillögunni.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson var andsnúinn því að hafna tillögunni.
04
Skipulagsnefnd - 1267. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Á fundi skipulagsnefndar 24.8.2015 var málinu frestað.
Skipulagsnefnd óskaði eftir minnisblaði frá bæjarlögmanni um stöðu málsins fyrir næsta fund nefndarinnar.
05
Skipulagsnefnd - 1264. fundur
Lagt fram bréf Hauks Guðmundssonar hdl., f.h. lóðarhafa Fífuhvamms 25 dags. 16.7.2015.$line$$line$Greint frá stöðu mála.
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir stöðu mála. Frestað.
06
Skipulagsnefnd - 1260. fundur
Greint frá stöðu mála.
07
Skipulagsnefnd - 1259. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg, f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Á fundi skipulagsnefndar 4.5.2015 var málinu frestað og vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
Frestað. Við úrvinnslu málsins kom í ljós að misræmi er á milli samþykkts mæliblaðs og samþykktra byggingarnefndarteikninga hvað varðar fjarlægð bílskúrs frá lóðamörkum Fífuhvamms 25 og 27. Ekki verður unnt að ljúka afgreiðslu málsins fyrr en umrædd gögn hafa verið yfirfarin.
08
Skipulagsnefnd - 1258. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Á fundi skipulagsnefndar 16.3.2015 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fífuhvamms 21, 23, 27, 29, 31; Víðihvamms 14, 16, 18, 20, 22 og 24.$line$$line$Kynningu lauk 4.5.2015. Athugasemd barst frá Lárentínusi Kristjánssyni, hrl., f.h. íbúa Fífuhvamms 27, dags. 30.4.2015.
Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.
09
Skipulagsnefnd - 1255. fundur
Lögð fram að nýju tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Viðbygging skiptist í tvö herbergi og gang og er tengd innbyrðis við 2. hæð íbúðarhússins. Hámarkshæð viðbyggingar og bílskúrs verður 5,9 metrar, þar af er vegghæð viðbyggingar á 2. hæð 3 metrar. Bílskúr og viðbygging eru 0,4m frá lóðamörkum við Fífuhvamm 27 sbr. uppdráttum dags. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var málinu frestað.
Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fífuhvamms 21, 23, 27, 29, 31; fyrir lóðarhöfum Víðihvamms 14, 16, 18, 20, 22 og 24.
10
Skipulagsnefnd - 1254. fundur
Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram tillaga Verkfræðistofunnar Hamraborg þar sem óskað er eftir að reisa 56,8m2 viðbyggingu ofan á þegar byggðan bílskúr við Fífuhvamm 25. Viðbygging skiptist í tvö herbergi og gang og er tengd innbyrgðis við 2. hæð íbúðarhússins. Hámarkshæð viðbyggingar og bílskúrs verður 5,9 metrar, þar af er vegghæð viðbyggingar á 2. hæð 3 metrar. Bílskúr og viðbygging eru 0,4m frá lóðamörkum við Fífuhvamm 27 sbr. uppdráttum dags. 8.2.2011.$line$$line$Þá lagður fram úrskurður frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála dags. 15.1.2015 vegna kæru á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 21.6.2011 um leyfi til að reisa viðbyggingu ofan á bílskúr á lóðinni nr. 25 við Fífuhvamm.
Frestað. Skipulagsnefnd óskaði eftir uppfærðum gögnum og formlegu erindi.