Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, SPOT. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Borgarholtsskóla um tækifærisleyfi í tilefni árshátíðar.

Málsnúmer: 1502386

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2763. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 11. febrúar, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfðborgarsvæðinu, dags. 11. febrúar, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Borgarholtsskóla, kt. 700196-2169, um tækifærisleyfi til að mega halda menntaskóladansleik fimmtudaginn 19. febrúar 2015, frá kl. 19:00-01:00, á SPOT, Bæjarlind 6, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Bryndís Sigurjónsdóttir, kt. 170346-2469 og um öryggisgæslu annast Go Security. $line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.