Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fannborg 7-9. Kynning á byggingarleyfi.

Málsnúmer: 1502426

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1115. fundur

Lögð fram að nýju tillaga KRark f.h. Hraunbrautar ehf. dags. 20.6.2013. Í tillögu felst að húsnæði verði breytt í íbúðir að hluta. Á jarðhæð verða 10 íbúðir, allar um 50m2 að stærð en í kjallara verða vinnustofur og geymslur. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda hússins dags. 9.2.2015. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fannborgar 2, 3, 5, 6, 7 og 8; Digranesvegar 5 og 7. Kynningu lauk 30.3.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Skipulagsnefnd - 1257. fundur

Lögð fram að nýju tillaga KRark f.h. Hraunbrautar ehf. dags. 20.6.2013. Í tillögu felst að húsnæði verði breytt í íbúðir að hluta. Á jarðhæð verða 10 íbúðir, allar um 50m2 að stærð en í kjallara verða vinnustofur og geymslur. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda hússins dags. 9.2.2015. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fannborgar 2, 3, 5, 6, 7 og 8; Digranesvegar 5 og 7. Kynningu lauk 30.3.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1254. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram tillaga KRark f.h. Hraunbrautar ehf. dags. 20.6.2013. Í tillögu felst að húsnæði verði breytt í íbúðir að hluta. Meðfylgjandi er samþykki allra eigenda hússins.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fannborgar 2, 3, 5, 6, 7 og 8; Digranesvegar 5 og 7.