Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Mengunarslys. Spilliefni í fráveitukerfi í janúar 2015.

Málsnúmer: 1502792

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2764. fundur

Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni bæjarfulltrúa, vegna mengunarslyss sem átti sér stað í Kópavogi þar sem spilliefni fundust í fráveitukerfi.

Lagt fram.$line$$line$Guðmundur H. Einarsson framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis sat fundinn undir þessum lið.$line$$line$Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Vekur furðu að mengunarslys í fráveitu Kópavogs skuli ekki koma strax inn á borð bæjarráðs og að bæjarráðsmenn skuli þurfa að lesa um það í fjölmiðlum einum mánuði eftir að slysið átti sér stað. Það er ástæða til að skoða verkferla hjá Kópavogsbæ varðandi upplýsingagjöf þegar og ef mengunarslys eiga sér stað í framtíðinni.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson"$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson og Birkir Jón Jónsson tóku undir bókun Péturs Hrafns Sigurðssonar.