Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stefna um bólusetningu barna í leik- og grunnskólum. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni

Málsnúmer: 1502839

Ferill máls

01

Skólanefnd - 84. fundur

Svar við fyrirspurn lagt fram.

Svar kynnt.

02

Skólanefnd - 83. fundur

Fyrirspurn lögð fram til umræðu.

Máli frestað til næsta fundar.

03

Bæjarráð - 2764. fundur

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$$line$"Er einhver stefna til um bólusetningar barna í leik- og grunnskólum Kópavogs?$line$Eru foreldrar barna inntir eftir því hvort börn þeirra hafi verið bólusett við algengum sjúkdómum, sbr. ráðleggingar Landlæknis?$line$Fylgjast skólahjúkrunarfræðingar með hvort börn í skólum eru bólusett?$line$Eru foreldrar upplýstir um ef börn sem ekki eru bólusett ganga í skóla með börnum þeirra?$line$ a) Í sömu bekkjardeild$line$ b) Í sama árgangi$line$ c) Í sama skóla$line$Eru kennarar upplýstir um sömu atriði?$line$Eru kennarar fræddir um eðli og tilgang bólusetninga?$line$Eru kennarar og aðrir starfsmenn sem umgangast börnin daglega hvattir til að gangast undir bólusetningar eins og t.a.m. inflúensubólusetningar að hausti eða viðhalda öðrum bólusetningum? $line$$line$Greinargerð:$line$Á undanförnum vikum hafa borist fréttir af mislingafaröldrum austan hafs og vestan, og skipta tilfellin þúsundum. Sóttvarnarlæknir telur það aðeins tímaspursmál hvenær tilfelli greinast hérlendis. Ekki þarf að fjölyrða um alvarleika slíkra tíðinda né þau áhrif sem slíkt getur haft á skólasamfélagið. Mikilvægt er að menntasvið og skólarnir skoði þessi mál og ræði viðbrögð og leiðir til að tryggja öryggi barnanna.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"