Íþróttaráð, dags. 19. mars 2015.
Málsnúmer: 1503005F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1114. fundur
46. fundur íþróttaráðs í 11. liðum.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 2768. fundur
46. fundur íþróttaráðs í 11. liðum.
Lagt fram.$line$$line$Sigurjón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Á bæjarráðsfundi þann 19. desember 2014 var samþykkt að ráðast í gerð lýðheilsustefnu og ráða verkefnastjóra strax í janúar 2015. Nú fer að styttast í apríl og enn hefur lítið gerst í þessu máli og enginn stýrihópur verið stofnaður.$line$Á fundi íþróttaráðs var tekið fyrir erindi frá GYM heilsu þar sem óskað er eftir því að bærinn gangi til samninga við þá varðandi rekstur þeirra í sundlaugum bæjarins. Þar segir ,,Vegna óvissu undanfarin misseri hefur ekki verið hægt að horfa til framtíðar og endurnýja búnað né aðstöðu vegna hótana og ráðaleysi aðila." $line$Á bæjarráðsfundi 8. maí 2014 var samþykkt að fresta útboði á líkamsrækt við sundlaugar Kópavogs þar til bærinn hefur markað sér lýðheilsustefnu. Nú eru liðnir tæpir 11 mánuðir og það ástand sem hefur skapast af seinagang bæjaryfirvalda er ólíðandi. Núverandi ástand hefur og mun, að öllu óbreyttu, hafa skaðleg áhrif á íbúa Kópavogs sem og rekstur bæjarins.$line$Sigurjón Jónsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 8.31. Fundi var fram haldið kl. 8.56.$line$$line$Fulltrúar meirihluta lögðu fram eftirfarandi bókun:$line$"Vinna við lýðheilsustefnu er í eðlilegum farvegi þar sem vandað er til undirbúnings og hefur frá áramótum verið unnið að framgangi málsins. Þegar hefur verið farið í verðfyrirspurnir um aðkomu utanaðkomandi ráðgjafar vegna verkefnisins. Undirbúningur stefnunnar er í höndum sviðsstjóra menntasviðs. Vegna óljósrar orðnotkunnar í bókun viljum við taka fram að ekki er um hótanir bæjaryfirvalda að ræða heldur er verið að vísa í önnur samskipti.$line$Theódóra Þorsteinsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Karen Halldórsdóttir, Guðmundur Geirdal"$line$$line$Sigurjón Jónsson leggur fram bókun:$line$"Undirritaður fellur frá 1. málsgrein fyrri bókunar.$line$Sigurjón Jónsson"$line$$line$Sviðsstjóri menntasviðs sat fundinn að hluta undir þessum lið.