Bæjarráð, dags. 12. mars 2015.
Málsnúmer: 1503006F
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1113. fundur
2766. fundur bæjarráðs í 15. liðum.
Lagt fram.$line$$line$Karen Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun vegna málefna fatlaðs fólks:$line$"Undirrituð lýsir yfir áhyggjum af þeirri stöðu sem málefni fatlaðra er komin í skv. bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga þann 27. febrúar 2015. Þar er ítrekað að ekki sé til næg fjármögnun til að standa undir útgjöldum við þjónustu við fatlað fólk að óbreyttu. Það er grundvallarforsenda fyrir áframhaldandi nauðsynlegri þjónustu við fatlaða einstaklinga og fjölskyldur þeirra að sveitafélögin fái 1,33% í stað 1,2% af tekjuskatti ríkisins yfir í útsvar. $line$Það er áríðandi að útkoma endurmatsins og samningaviðræðna á grundvelli þess liggi fyrir sem fyrst til að draga úr óvissu sem skapast hefur í málaflokknum vegna vanfjármögnunar hans. Samtakamáttur sveitafélaganna skiptir hér öllu máli. $line$Karen Elísabet Halldórsdóttir "