Beint í efni
Til baka í fundargerðir

KOP15. Skuldabréfaútboð. Fjármögnun.

Málsnúmer: 1503133

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1114. fundur

Frá fjármálastjóra, dags. 7. apríl, lögð fram eftirfarandi tillaga til bæjarstjórnar um lántöku:$line$Bæjarstjórn samþykki að gefinn verði út nýr skuldabréfaflokkur Kópavogsbæjar, KOP 15-1 sem er opinn og með engri hámarksstærð. Flokkurinn verði til 25 ára, með 4 gjalddaga á ári. Vextir taki mið af markaðsaðstæðum þegar flokkurinn er stofnaður.$line$Bæjarstjórn samþykki einnig að á árinu 2015 verði gefin út skuldabréf í þessum flokki að nafnvirði allt að kr. 3,0 milljarðar. Frekari stækkun skuldabréfaflokksins fer eftir ákvörðun bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum ofangreinda tillögu um útgáfu nýs skuldabréfaflokks, KOP 15-1 og lántöku að fjárhæð 3 milljarðar króna.

02

Bæjarráð - 2770. fundur

Frá fjármálastjóra, dags. 7. apríl, lögð fram eftirfarandi tillaga til bæjarstjórnar um lántöku:$line$Bæjarstjórn samþykkir að gefinn verði út nýr skuldabréfaflokkur Kópavogsbæjar, KOP 15-1 sem er opinn og með engri hámarksstærð. Flokkurinn verði til 25 ára, með 4 gjalddaga á ári. Vextir taki mið af markaðsaðstæðum þegar flokkurinn er stofnaður.$line$Bæjarstjórn samþykkir einnig að á árinu 2015 verði gefin út skuldabréf í þessum flokki að nafnvirði allt að kr. 3,0 milljarðar. Frekari stækkun skuldabréfaflokksins fer eftir ákvörðun bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarráð - 2769. fundur

Samkvæmt fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2015 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 3 milljarðar króna til að endurfjármagna eldri lán og á næstu árum fyrirhugar bærinn að greiða upp nokkra eldri skuldabréfaflokka sem ýmist eru á gjalddaga eða með uppgreiðsluheimild. Frá fjármálastjóra, dags. 31. mars, lagðar fram niðurstöður tilboða í skuldabréfaútgáfu 2015. Lagt er til að samið verði við Íslandsbanka um útgáfu og sölu skuldabréfa. Lögð fram drög að verksamningi við Íslandsbanka.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og verksamning við Íslandsbanka með fimm atkvæðum.$line$$line$Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.