Nýting á frístundastyrk
Málsnúmer: 1503316
Ferill máls
01
Forvarna- og frístundanefnd - 30. fundur
Lagt fram erindi til afgreiðslu frá íbúa í Kópavogi, þar sem óskað var eftir því að sonur hennar geti nýtt sér tómstundastyrkinn til greiðslu á líkmasræktarkorti í Gym heilsu í sundlaugum bæjarins, vegna sérstakra aðstæðna hans. Erindið var lagt fram í íþróttaráði 19.mars sl.og hafnð þann 30. apríl á fundi ráðsins á grundvelli umsagnar lögfræðisviðs dags. 7. apríl sl., sem telur að stök líkamsræktarkort uppfylla ekki skilyrði til frístundastyrkja eins og reglur sveitarfélagsins eru í dag. Í reglunum er ekki að finna undanþáguákvæði sem heimilar greiðslu frístundastyrks í sérstökum tilvikum.$line$$line$
Forvarna- og frístundanefnd hafnar erindinu þar sem það uppfyllir ekki skilyrði til frístundastyrkja eins og reglur sveitarfélagsins eru í dag.
02
Íþróttaráð - 47. fundur
Tekið til afgreiðslu erindi frá íbúa í Kópavogi, þar sem óskað var eftir því að sonur hennar geti nýtt sér tómstundastyrkinn til greiðslu á líkmasræktarkorti í Gym heilsu í sundlaugum bæjarins, vegna sérstakra aðstæðna hans. Erindið var lagt fram í íþróttaráði 19.mars sl., og vísað til umsagnar lögfræðisviðs bæjarins. Lögð fram umsögn lögfræðisviðs dags. 7. apríl sl., sem telur að stök líkamsræktarkort uppfylla ekki skilyrði til frístundastyrkja eins og reglur sveitarfélagsins eru í dag. Í reglunum er ekki að finna undanþáguákvæði sem heimilar greiðslu frístundastyrks í sérstökum tilvikum.
Íþróttaráð hafnar erindinu á grundvelli framlagðrar umsagnar lögfræðisviðs bæjarins.
03
Íþróttaráð - 46. fundur
Lagður fram tölvupóstur dags. 10. mars sl., frá íbúa í Kópavogi, þar sem óskað er eftir því að sonur hennar geti nýtt sér tómstundastyrkinn til greiðslu á líkmasræktarkorti í Gym heilsu í sundlaugum bæjarins, vegna sérstakra aðstæðna hans.
Lagt fram - Íþróttaráð vísar málinu til umsagnar lögfræðisviðs.