Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Naustavör 7 og 22-30. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1503327

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1114. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 24. mars. lagt fram erindi Archus f.h. lóðarhafa dags. 16.3.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Naustavarar 7 og 22-30. $line$Skipulagsnefnd taldi framlagða breytingu ekki varða hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa og samþykkti því tillöguna með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2768. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 24. mars. lagt fram erindi Archus f.h. lóðarhafa dags. 16.3.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Naustavarar 7 og 22-30. $line$Skipulagsnefnd taldi framlagða breytingu ekki varða hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa og samþykkti því tillöguna með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1256. fundur

Lagt fram erindi Archus f.h. lóðarhafa dags. 16.3.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Naustavarar 7 og 22-30. Í breytingunni felst að byggingarreitur við Naustavör 22-30 færist um 1,5m til suðurs og íbúðir í húsinu verða 23 í stað 30. Heildarbyggingarmagn Naustavarar 22-30 minnkar um ca. 325m2. Í Naustavör 7 verður íbúðum fjölgað um 5 og verða því 17 í stað 12. Heildarbyggingarmagn Naustavarar 7 eykst um 325m2. Gluggi á vesturhlið hússins fer 1m út fyrir byggingarreit til vesturs. Að öðru leyti er húsið innan byggingarreits sbr. uppdráttum dags. 4.3.2015.$line$$line$Lagt fram minnisblað frá Conís verkfræðiráðgjöf dags. 19.3.2015 um gólfkóta bygginga.$line$Einnig lagðar fram sneiðingar dags. 19.3.2015 af Naustavör 7 og 22-30 sem sýna hámarkshæð bygginga og gólfkóta.

Skipulagsnefnd taldi framlagða breytingu ekki varða hagsmuni annara en sveitarfélagsins og lóðarhafa og samþykkti því tillöguna með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1255. fundur

Lagt fram erindi Archus f.h. lóðarhafa dags. 16.3.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi bryggjuhverfisins á Kársnesi. Í breytingunni felst að byggingarreitur við Naustavör 22-30 færist um 1,5m til suðurs og að íbúðir í húsinu verði 23 í stað 30. Í Naustavör 7 verði íbúðum fjölgað um 5 og verði því 17 í stað 12 sbr. uppdráttum dags. 4.3.2015.

Frestað.