Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fróðaþing 44. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1503332

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1116. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram að nýju erindi TAG teiknistofu f.h. lóðarhafa að Fróðaþingi 44, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Fróðaþings 44. Búið er að grenndarkynna tillöguna og engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Bæjarráð - 2774. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram að nýju erindi TAG teiknistofu f.h. lóðarhafa að Fróðaþingi 44, þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Fróðaþings 44. Búið er að grenndarkynna tillöguna og engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Lagt fram að nýju erindi TAG teiknistofu f.h. lóðarhafa dags. 10.3.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Fróðaþings 44. Á fundi skipulagsnefndar 16.2.2015 var samþykkt með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fróðaþings 29, 31, 36, 38 og 46.Kynningu lauk 30.4.2015. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

04

Skipulagsnefnd - 1255. fundur

Lagt fram erindi TAG teiknistofu f.h. lóðarhafa dags. 10.3.2015 þar sem óskað er eftir breyttu deiliskipulagi Fróðaþings 44. Í breytingunni felst að farið er 74cm út fyrir byggingarreit á norðausturhlið hússins sbr. uppdráttum dags. 9.2.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Fróðaþings 29, 31, 36, 38 og 46.