Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Útitónleikar í Hamraborg að frumkvæði Erps Eyvindarsonar.

Málsnúmer: 1503520

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 46. fundur

Forstöðumaður Listhúss greinir frá því að Erpur hafi óskað eftir því að flytja styrkinn á milli ára og halda tónleikana næsta vor.

Lista- og menningarráð mælist til þess að Erpur endurnýi umsókn sína þegar lista- og menningarráð auglýsir eftir styrkumsóknum vegna næsta árs í lok þessa árs

02

Lista- og menningarráð - 40. fundur

Erpur Eyvindarson mætir á fundinn kl. 17:06 og reifar hugmynd sína að útitónleikum í Hamraborginni í ágúst á þessu ári. Hugmyndin er að leiða saman tónlistarmenn sem kenna sig við Kópavog og halda tónleika með mörgum stuttum atriðum frá kl. 13 til kl. 23 einn laugardag í ágúst.

Almenn ánægja hjá fundarmönnum með hugmyndina og var styrkveigingin samþykkt einróma.

03

Lista- og menningarráð - 39. fundur

Ráðið felur formanni og forstöðumanni Listhúss Kópavogs að hafa samband við umsóknarhafann með nánari útfærslu í huga.