Menntasvið-fundir nefndarmanna íþróttadeildar
Málsnúmer: 1503556
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 69. fundur
.
Formaður íþróttaráðs greindi frá heimsókn sinni til Skotíþróttafélags Kópavogs þann 24. jan. sl., og því starfi sem félagið stendur fyrir í æfingaaðstöðu sinni í Digranesi. Formaður gerði grein fyrir því að starf félagsins beri það með sér að sjálfboðaliðar, bæði nú og fyrr, hafi unnið afar mikilvægt starf. Fundurinn var góður og þakkaði formaður fyrir hann.
02
Íþróttaráð - 53. fundur
Greint frá fundi sem Jón Finnbogason, Hlín Bjarnadóttir og Jón Júlíusson, fulltrúar í starfshópi ráðsins um framtíðarskipulag knattspyrnunnar í Kópavogi áttu með framkvæmdastjórum aðalstjórnar og knattspyrnudeildar Breiðabliks í Fífunni miðvikudaginn 25. nóv. sl.
Lagt fram.
03
Íþróttaráð - 47. fundur
Formaður íþróttaráðs mætti á 2 fundi/sýningar og átti 1 fund með fulltrúum knattspyrnudeilda Breiðabliks og HK frá síðast fundi ráðsins.
Þann 19. apríl 2015 mætti formaður Íþróttaráðs, Jón Finnbogason, á vorsýningu Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar, sem fram fór í Smáranum. Allir iðkendur hjá félaginu komu fram og sýndu glögglega mikla breidd í starfi félagsins$line$Þann 20. apríl 2015 átti formaður Íþróttaráðs, Jón Finnbogason, fund með Baldri Má Bragasyni, formanni Knattspyrnudeildar HK, og Eysteini Pétri Lárussyni, framkvæmdastjóra Knattspyrnudeildar Breiðablik. Rætt var um sameiginleg mál og stefnumörkun Knattspyrnu í Kópavogi.$line$$line$Þann 28. apríl mætti formaður Íþróttaráðs, Jón Finnbogason, á aðalfund Breiðabliks. Í skýrslu stjórnar kom fram hversu umfangsmikið starf fer fram innan raða félagsins. $line$Formaður Íþróttaráðs færði fundinum kveðju íþróttaráðs. Þá kom fram í ársskýrslu í Knattspyrnudeildar að aðalfundur deildarinnar hafi samþykkt eftirfarandi ályktun sem einnig var rædd á aðalfundi Breiðabliks: "Aðalfundur knattspynudeildar Breiðabliks óskar eftir því við bæjarstjórn Kópavogs að hefja undirbúning að því að bæta vetrar- og keppnisaðstöðu knattspyrnudeildar Breiðabliks." Íþróttaráð felur starfsmönnum íþróttadeildar að koma upplýsingum um tilgreinda bókun áleiðis til stjórnenda Kópavogsbæjar og leggur áherslu á að fengnar verði nánari upplýsingar um hvað er átt við með ályktuninni.
04
Íþróttaráð - 46. fundur
Íþróttaráð samþykkir að fundir vegna íþróttamála sem haldnir eru milli íþróttaráðsfunda séu kynntir undir þessum lið.
Formaður greindi frá fundi sem hann átti með Þóri Hinrikssyni og Jóni Karlssyni fulltrúum einkarekna knattspyrnuskólans Battar. Rætt var um rekstur þeirra og hvernig þeirra áherslur væru.$line$Formaður greindi frá því að hann hafi átt fund með Baldri Má Bragasyni og Sigurjóni Sigurðsson þann 16. mars sl. ásamt bæjarfulltrúanum Guðmundi Gísla Geirdal. $line$Umfjöllun um m.a.: 1 iðkendafjöldi og þróun innan knattspyrnudeildarinnar. 2 Tímar í íþróttahúsum. 3 Gervigrasvöll. 4 Skipting hverfa í Kópavogi. 4 Margliðu um styrki.