Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Austurkór 12. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1503576

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1115. fundur

Lögð fram að nýju tillaga lóðarhafa Austurkórs 12, Árna Kristins Gunnarssonar, að breyttu deiliskipulagi Austurkórs 12. Þá lagt fram samþykki aðliggjandi lóðarhafa.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Skipulagsnefnd - 1257. fundur

Lögð fram að nýju tillaga lóðarhafa Austurkórs 12, Árna Kristins Gunnarssonar, að breyttu deiliskipulagi Austurkórs 12. Þá lagt fram samþykki aðliggjandi lóðarhafa.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1256. fundur

Lögð fram tillaga lóðarhafa Austurkórs 12, Árna Kristins Gunnarssonar, að breyttu deiliskipulagi Austurkórs 12. Í breytingunni felst að svalir fara 1,1m út fyrir byggingarreit á vesturhlið hússins. Að auki fer einhalla þak 30cm upp fyrir byggingarreit á norðurhlið hússins sbr. uppdráttum.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Austurkórs 10, 14, 44 og 46.