Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hjólreiðar á höfuðborgarsvæðinu

Málsnúmer: 1503668

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 72. fundur

Lögð fram skýrsla með hönnunarleiðbeiningum fyrir hjólreiðar sem unnin var af samstarfshópi sveitafélaga á höguðborgarsvæðinu og Vegagerðinni.

Lagt fram og kynnt.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 75. fundur

Lagðar fram fundargerðir 4. fundar dags. 7.4.2016 og 5. fundar dags. 12.4.2016 samstarfshóp sveitarfélaga Höfuðborgarsvæðisins um samræmdar merkingar á lykilleiðum hjólastíga.

Lagt fram og kynnt.

03

Umhverfis- og samgöngunefnd - 74. fundur

Frá verkefnastjóra Hjólreiðaáætlunar Reykjavíkurborgar 2015 lögð fram tillaga að úrfærslu vegvísa lykilleiða hjólastíga ásamt fundargerð samstarfshóps sveitarfeálga Höfuðborgarsvæðisins um samræmdar merkingar á lykilleiðum hjólastíga dags. 3.2.2016.

Greint frá stöðu mála.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 73. fundur

Greint frá framvindu mála. Lögð fram fundargerð frá samráðsfundum fulltrúa sveitarfélaganna ásamt verklýsingu og tíma- og kostnaðaráætlun dags. 14.1.2016.

Hreiðar Odsson leggur fram breytingartillög á afreiðslu erindsins.$line$Hjördís Ýr Johnson, Hreiðar Oddsson, Ísól Fanney Ómardsóttir og Sigurður Grétarsson greiða atkvæði með afgreiðslu breytingartillögu erindis. Einar Baldursson greiðir atkvæði gegn breytingartillögu erindis.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar framtakinu og samþykkir þátttöku í samræmingu skilta, lið 2, fyrir meginleiðir hjólreiðaráætlunar Reykjavíkurborgar 2015 að öðru leiti sér Kópavogsbær um uppsetningu, kostnaðargreiningu og staðsetningu skilta enda eru kostnaðarþættir Kópavogsbæjar við gerð handbókar of háir miðað við umfang.$line$Hjördís Ýr Johnson, Hreiðar Oddsson, Ísól Fanney Ómardsóttir og Sigurður Grétarsson greiða atkvæði með afgreiðslu erindins. Einar Baldursson greiðir atkvæði gegn þessari afgreiðslu erindsins.

05

Umhverfis- og samgöngunefnd - 72. fundur

Lagt fram kynningarefni á lituðum lykilleiðum og merkingar á hjólaleiðum frá Samgöngudeild, Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir þátttöku á kynningarfundi Hjólreiðaáæltunar Reykjavíkurborgar 2015.

06

Umhverfis- og samgöngunefnd - 64. fundur

Kristinn Jón Eysteinsson kynnir drög að Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar 2015-2020.

Lagt fram og kynnt.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogsbæjar þakkar Kristni Jóni Eysteinssyni verkefnastjóra Samgönguskrifstofu Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur fyrir kynninguna.