Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Malbikun í Kópavogi og efnisútvegun 2015

Málsnúmer: 1503744

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2779. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 15. júní, niðurstaða tilboða í malbik yfirlagna og nýlagna og malbikskaup. Lagt er til að leitað verði samninga við Loftorku Reykjavík ehf. um malbiks yfirlagnir og nýlagnir í Kópavogi 2015. Lagt er til að leitað verði samninga við Malbikunarstöðina Höfða ehf. um malbikskaup fyrir árið 2015.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra framkvæmdadeildar að leita samninga við Loftorku Reykjavík ehf. og Malbikunarstöðina Höfða ehf. í samræmi við niðurstöðu tilboða.

02

Bæjarráð - 2769. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 27. mars, óskað eftir heimild til að bjóða út í lokuðu útboði malbik fyrir árið 2015 og verkið "Malbiksyfirlagnir í Kópavogi 2015".

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila að farið verði í lokað útboð á malbiki fyrir árið 2015 og verkinu "Malbiksyfirlagnir í Kópavogi 2015".$line$$line$Deildarstjóri framkvæmdadeildar sat fundinn undir þessum lið.