Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Borgarholtsbraut 48. Kynning á byggingarleyfi.

Málsnúmer: 1504032

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1116. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar f.h. lóðarhafa að Borgarholtsbraut 48, þar sem óskað er eftir að hús sem stendur á lóðinni verði rifið og þess í stað verði reist fjórbýli á tveimur hæðum. Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem framlögð tillaga samræmist ekki Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.

02

Bæjarráð - 2774. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar f.h. lóðarhafa að Borgarholtsbraut 48, þar sem óskað er eftir að hús sem stendur á lóðinni verði rifið og þess í stað verði reist fjórbýli á tveimur hæðum. Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem framlögð tillaga samræmist ekki Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lagt fram erindi Jóns Hrafns Hlöðverssonar, dags. 27.2.2015. f.h. lóðarhafa. Óskað er eftir að hús frá 1950 sem stendur á lóðinni í dag verði rifið og þess í stað reist 500m2 fjórbýli á tveimur hæðum. Íbúðir verða 115 og 130m2 að stærð, nýtingarhlutfall er í dag 0,11 en verður 0,55 og á lóð verða 8 bílastæði sbr. uppdráttum dags. 9.3.2015.

Framlögð tillaga samræmist ekki rammaákvæðum í kafla 7 í Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 hvað varðar byggirmagn á lóð, nýtingarhlutfall eða legu og form byggingarreits á lóð í þegar byggðu hverfi.$line$$line$Hafnað. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.