Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vallakór 12, Kórinn. Kópavogsbær. Beiðni um umsögn vegna umsóknar Kópavogsbæjar um tækifærisleyfi.

Málsnúmer: 1504237

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2773. fundur

Frá heilbrigðiseftirliti, dags. 17. apríl, lögð fram umsögn heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um umsókn Kópavogsbæjar um tímabundið tækifæris- og áfengisleyfi vegna árshátíðar bæjarins.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2772. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 16. apríl, lögð fram umsókn Kópavogsbæjar, kt. 700169-3759 um tækifærisleyfi vegna árshátíðar Kópavogs laugardaginn 9. maí 2015, frá kl. 19:00-02:00, í íþróttahúsinu Kórnum, að Vallarkór 12, Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Ármann Kr. Ólafsson, kt. 170766-5049 og um öryggisgæslu annast Bjarni Knútsson, kt. 160577-4799.$line$Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfesta sveitarstjórnir sem umsagnaraðilar að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 2. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.