Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Íþróttadeild-Hlaupaleiðir frá Sundlaugum Kópavogs.

Málsnúmer: 1504266

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 47. fundur

Lögð fram til kynningar drög að upplýsingaskiltum með tillögum að hlaupaleiðum út frá sundlaugum bæjarins sem unnar hafa verið á umhverfissviði Kópavogsbæjar. Nánari útfærsla er í vinnslu en reiknað er með að skiltin verði tilbúin til uppsetningar í næstu viku.

Íþróttaráð lýsir ánægju sinni með framkomnar tillögur og telur þær bæti enn frekar þá góða þjónustu sem tengd er sundlaugunum. Íþróttaráð telur einnig að það gæti verið áhugavert að nota sömu kort á sérstök skylti sem staðsett yrðu á nokkrum stöðum á umræddum leiðum. Íþróttaráð felur íþróttadeild að skoða nánar þessa útfærslu.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 64. fundur

Kynnt verkefni hlaupaleiðir frá sundlaugum Kópavogs.

Lagt fram og kynnt.