Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Innri endurskoðun Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1504501

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2814. fundur

Frá fjármálastjóra, dags. 18. mars 2016, svar við fyrirspurn frá 25. febrúar 2016 varðandi innleiðingu innri endurskoðunar hjá Kópavogsbæ.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2813. fundur

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Hvað líður innleiðingu innri endurskoðunar hjá Kópavogsbæ?$line$Birkir Jón Jónsson"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Unnið er að málinu af fullum krafti og mun greinargerð liggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs.$line$Ármann Kr. Ólafsson"

03

Bæjarráð - 2811. fundur

Birkir Jón Jónsson ítrekar fyrirspurn um innleiðingu innri endurskoðunar.

04

Bæjarráð - 2810. fundur

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:$line$"Hvað líður innleiðingu innri endurskoðunar hjá Kópavogsbæ? $line$Birkir Jón Jónsson"

05

Bæjarráð - 2772. fundur

Við leggjum til að bæjarráð feli bæjarstjóra að kanna kosti þess að innleiða innri endurskoðun hjá Kópavogsbæ og kostnaðarmat þar að lútandi. Ekki er starfandi innri endurskoðunardeild hjá sveitarfélaginu né aðkeypt innri skoðun. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um innri endurskoðun frá október 1999 segir m.a. um hlutverk og skilgreiningu á innri endurskoðun: $line$$line$Greinargerð:$line$1. Skilgreining á innri endurskoðun$line$1.1 Hvað er innri endurskoðun$line$Innri endurskoðun má skilgreina sem hlutlaust matsferli, sem hefur það grundvallarmarkmið að skapa aukin verðmæti (virðisauka) með því að bæta viðkomandi rekstur, aðstoða stjórnendur við að ná settum rekstrarmarkmiðum og meta árangur, bæta áhættustýringu, eftirlit og stjórnun með kerfisbundnum og öguðum vinnubrögðum.$line$1.2 Hlutverk$line$Á síðustu áratugum hafa viðhorf stjórnenda opinberra fyrirtækja og einkafyrirtækja til hlutverks innri endurskoðunar verið að breytast. Fyrst tóku þau að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum og síðar um allan heim. Áður fyrr var litið svo á að megin viðfangsefni innri endurskoðunar fælist í eftirliti með því að reglur og fyrirmæli, sem snúa að fjárhags og bókhaldslegum þáttum, væru virt. Nú er hins vegar jafnframt gerð krafa um að innri endurskoðun sé liður í því að viðhalda og tryggja sem mestan árangur af viðkomandi starfsemi.$line$Hlutverk innri endurskoðunar er því að aðstoða stjórnendur, jafnt æðstu stjórnendur sem og millistjórnendur, við að ná settum markmiðum.$line$Birkir Jón Jónsson$line$Pétur Hrafn Sigurðsson$line$Ólafur Þór Gunnarsson$line$$line$Bókun bæjarstjóra:$line$"Þessi vinna er í gangi og m.a. hef ég tekið upp viðræður um samstarf á vettvangi SSH sem ekki gekk eftir. Í framhaldinu ræddi ég um samstarf við bæjarstjóra Hafnarfjarðar varðandi sameiginlega innri endurskoðun. Þá er einnig verið að skoða möguleika aðkeyptrar þjónustu."