Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn vegna sundlaugar í Fossvogi

Málsnúmer: 1504502

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2772. fundur

Í ljósi fréttaflutnings um byggingu sundlaugar í Fossvogsdal, í samstarfi Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar óskum við eftir því að málið verði kynnt á næsta fundi bæjarráðs. Jafnframt teljum við eðlilegt að skipulagsnefnd ásamt umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogsbæjar fái málið til umfjöllunar. Það er mikilvægt og til bóta að kjörnir fulltrúar í Kópavogi verði upplýstir og komi að ákvarðanatöku í þessu máli fyrr en síðar. $line$Birkir Jón Jónsson$line$Ólafur Þór Gunnarsson$line$Pétur Hrafn Sigurðsson