Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 28. Grenndarkynning

Málsnúmer: 1504558

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1123. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 15. september, að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga frá Hús og skipulagi f.h. lóðarhafa, þar sem óskað er eftir að breyta tveimur vinnustofum á 2. hæð Nýbýlavegs 28 í tvær íbúðir. Á fundi skipulagsnefndar 4.5.2015 var samþykkt aðgrenndarkynna framlagða tillögu. Engar athugasemdir. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Skipulagsnefnd - 1265. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga frá Hús og skipulagi f.h. lóðarhafa dags. 27.3.2015. Óskað er eftir að breyta tveimur vinnustofum á 2. hæð Nýbýlavegs 28 í tvær íbúðir sbr. uppdrætti dags. 27.3.2015. Á fundi skipulagsnefndar 4.5.2015 var samþykkkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 26, 28 og 30; Laufbrekku 8 og 10. Kynningu lauk 26.8.2015. Engar athugasemdir bárust á kynningartíma.

Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

03

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Frá byggingarfulltrúa:$line$Lögð fram tillaga frá Hús og skipulag f.h. lóðarhafa dags. 27.3.2015. Óskað er eftir að breyta tveimur vinnustofum á 2. hæð Nýbýlavegs 28 í tvær íbúðir sbr. uppdrætti dags. 27.3.2015.

Skipulagsnefnd samþykkti með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 26, 28 og 30; Laufbrekku 8 og 10.