Funahvarf 3/Breiðahvarf 4. Heiti á nýrri götu.
Málsnúmer: 1504560
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1116. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að nýju götuheiti fyrir Húsagötu A, sbr. nýtt deiliskipulag fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3, sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 24.03.2015. Skipulagsnefnd samþykkir að heiti á nýrri götu verði Faldarhvarf. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með sex atkvæðum gegn einu. Fjórir bæjarfulltrúar greiddu ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að atkvæði með tillögunni greiddu Margrét Friðriksdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Jón Finnbogason, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson og Ólafur Þór Gunnarsson atkvæði en Karen Halldórsdóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni. Ármann Kr. Ólafsson, Kristín Sævarsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson greiddu ekki atkvæði.
02
Bæjarráð - 2774. fundur
Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að nýju götuheiti fyrir Húsagötu A, sbr. nýtt deiliskipulag fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3. Skipulagsnefnd samþykkir að heiti á nýrri götu verði Faldarhvarf. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Skipulagsnefnd - 1258. fundur
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að nýju götuheiti fyrir Húsagötu A sbr. nýtt deiliskipulag fyrir Breiðahvarf 4 og Funahvarf 3 sem samþykkt var í bæjarstjórn 24.3.2015.
Skipulagsnefnd samþykkti að heiti á nýrri götu verði Faldarhvarf. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.