Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vegtenging milli Vatnsendavegar og Kórsins. Heiti á nýrri götu.

Málsnúmer: 1504561

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1116. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að götuheiti nýrrar vegtengingar frá Vatnsendavegi að Kórnum. Skipulagsnefnd samþykkir að heiti götunnar verði Kórinn. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum. Einn bæjarfulltrúi greiddi ekki atkvæði. Atkvæði féllu þannig að tillöguna samþykktu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Jón Finnbogason, Pétur Hrafn Sigurðsson, Kristín Sævarsdóttir og Birkir Jón Jónsson en Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2774. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 5. maí, lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að götuheiti nýrrar vegtengingar frá Vatnsendavegi að Kórnum. Skipulagsnefnd samþykkir að heiti götunnar verði Kórinn. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

03

Skipulagsnefnd - 1258. fundur

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar dags. 4.5.2015 að götuheiti nýrrar vegtengingar frá Vatnsendavegi að Kórnum.

Skipulagsnefnd samþykkti að heiti götunnar verði Kórinn. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.