Hvönn-Danskeppni í Kópavogi 18.okt 2015 - Umsókn um aðstöðu og styrk.
Málsnúmer: 1504587
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 52. fundur
Tekið til afgreiðslu erindi frá dansfélögunum í Kópavogi frá 24. apr. sl., og frestað var á fundi íþróttaráðs 30. apr. sl., þar sem óskað er eftir styrk frá íþróttaráði vegna danskeppninnar.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð kr. -170.000,-
02
Íþróttaráð - 47. fundur
Lagt fram erindi dags. 24. apríl sl., frá þremur dansfélögum í Kópavogi, þ.e., dansfélaginu Hvönn, Dansíþróttafélagi Kópavogs og dansdeild HK, þar sem þau sækja um að fá afnot af íþróttahúsinu Smáranum sunnudaginn 18. okt. nk., undir danskeppni. Félögin héldu sambærilega keppni á síðasta hausti. Þá óska félögin eftir því að Kópavogsbær leggi til framlag til jafns við þau svo hægt sé að gera mótið enn glæsilegra.
Íþróttaráð samþykkir erindi dansfélaganna um afnot af Smáranum í október nk., og felur starfsmönnum að festa dagsetningu keppninnar á haustmisseri.$line$Umsókn um styrk frestað.