Hamraborg 14-38, bílageymsla.
Málsnúmer: 1504767
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2845. fundur
Frá stjórn Hamraborgarráðsins, dags. 23. október, lagt fram erindi vegna uppsagnar Kópavogsbæjar á samningi við Hamraborgarráðið um rekstur bílageymslu í Hamraborg.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.
02
Bæjarráð - 2827. fundur
Frá bæjarlögmanni og sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 21. júní, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til að segja upp samningi við Hamraborgarráðið frá 1993 að því er varðar rekstur bílageymslu Hamraborgar 14-38.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.
03
Bæjarráð - 2775. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 8. maí, lagt fram erindi þar sem lagt er til að skoðað verði hvort segja eigi upp samningi Kópavogsbæjar og Hamraborgarráðsins frá 7. maí 1993 um rekstur bílageymslu í Hamraborg 14-38, í framhaldi af erindi stjórnar Hamraborgarráðsins dags. 13. apríl.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.