Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hinsegin fræðsla í grunnskólum Kópavogs.

Málsnúmer: 1505229

Ferill máls

01

Menntaráð - 5. fundur

Kynning á fræðslu sem nú stendur yfir í grunnskólunum.

Margrét Sigurðardóttir fyrirlesari og ráðgjafi um hinsegin fræðslu fyrir grunnskóla Kópavogs kom og greindi frá hvernig fræðsla í skólunum er skipulögð og hvernig staðan er á verkefninu. Menntaráð lýsir ánægju sinni yfir að verkefnið sé farið af stað og hvernig að því er staðið.

02

Skólanefnd - 110. fundur

"Óskað er eftir svari frá Menntasviði um það hvers vegna ekki hefur verið byrjað á hinsegin fræðslu í grunnskólum Kópavogs eins og samþykkt var í Skólanefnd í vor að byrja á haustið 2016."

Bergljót Kristinsdöttir

Fulltrúi Samfylkingar í Skólanefnd

Verið er að skipuleggja tilhögun fræðslunnar og fer hún af stað um áramót.

03

Skólanefnd - 103. fundur

Skólanefnd fagnar því að bæjarráð skuli hafa samþykkt tillögu um eflingu hinsegin fæðslu en áréttar að meðfylgjandi kostnaðaráætlun rúmast ekki innan núverandi fjárhagsáætlunnar menntasviðs.

04

Bæjarráð - 2819. fundur

Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 8. mars, lagðar fram tillögur ásamt greinargerð um eflingu hinsegin fræðslu í grunnskólum Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um hinsegin fræðslu í grunnskólum Kópavogs ásamt kostnaðaráætlun vegna fræðslunnar, enda rúmist kostnaður innan fjárhagsáætlunar fræðslumála.

05

Skólanefnd - 102. fundur

Tillaga um eflingu hinsegin fræðslu lögð fram.

Skólanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti, með öllum greiddum atkvæðum og vísar henni til bæjarráðs.

06

Skólanefnd - 99. fundur

Greinargerð um hinsegin fræðslu lögð fram eftir endurskoðun.

Tillaga grunnskóladeildar um eflingu hinsegin fræðslu er samþykkt og vísað til menntasviðs til úrvinnslu.

07

Skólanefnd - 98. fundur

Greinargerð lögð fram.

Greinargerð lögð fram til kynningar. Tillaga menntasviðs verður endurskoðuð m.t.t. umræðu nefndarmanna og lögð fyrir á næsta fundi.

08

Skólanefnd - 97. fundur

Bergljót Kristinsdóttir fulltrúi Samfylkingarinnar lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 12 maí 2015 að óska eftir því að Menntasvið vinni umsögn og komi með tillögur að útfærslu á hinsegin fræðslu í grunnskólum Kópavogs eftir tillögu frá Samfylkingunni. Ekkert hefur bólað á þeirri umsögn. Undirrituð óskar efir að Menntasvið hraði vinnu sinni og leggi niðurstöður fyrir Skólanefnd hið fyrsta."$line$Ragnheiður Hermannsdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar gerði grein fyrir vinnu vinnuhóps sem er að leggja lokahönd á greinargerð um málið sem verður lögð fyrir fund skólanefndar í febrúar 2016. Vinnuhópinn er skipaður náms- og starfsráðgjöfum í grunnskólum Kópavogs og starfsmönnum grunnskóladeildar.

09

Skólanefnd - 88. fundur

Svar við fyrirspurn skólanefndar um hvernig hinsegin fræðslu sé háttað í grunnskólum Kópavogs.

Málið kynnt og vísað til áframhaldandi vinnu menntasviðs í samráði við skólastjóra.

10

Bæjarstjórn - 1116. fundur

Frá fulltrúum Samfylkingar, lögð fram eftirfarandi tillaga um að farið verði í átak í eflingu hinseginfræðslu. Einnig lögð fram greinargerð.

"Fulltrúar Samfylkingarinnar gera það að tillögu sinni að farið verði í átak í eflingu hinseginfræðslu og ráðgjöf í grunnskólum Kópavogs. Kópavogsbær leitist við að gera samstarfssamning við Samtökin 78 um þróun námsefnis fyrir öll stig grunnskóla, frá 1. til 10. bekkjar. Fræðslufulltrúar Samtakanna 78 haldi fræðslunámskeið fyrir alla starfsmenn í leikskólum, grunnskólum og dægradvöl. Nemendum í unglingadeildum grunnskóla verði sömuleiðis gert kleift að sækja einstaklingsráðgjöf hjá sérfræðingum Samtakanna 78 án endurgjalds.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Kristín Sævarsdóttir"$line$$line$Margét Friðriksdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu um afgreiðslu á tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar:$line$"Í kjölfar tillögu sem fram kom í skólanefnd 20. apríl s.l. um hinsegin fræðslu í grunnskólum Kópavogs og vísað var til menntasviðs er hafin vinna á Menntasviði við öflun gagna og upplýsinga frá grunnskólum Kópavogsbæjarins um framkvæmd hinsegin fræðslu í skólunum. Ég geri það að tillögu að fundurinn vísi framkominni tillögu Samfylkingar til Menntasviðs til umsagnar.$line$Margrét Friðriksdóttir"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 18.18. Fundi var fram haldið kl. 18.30.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:$line$"Að við tillöguna bætist: Bæjarstjórn samþykkir tillöguna og vísar til menntasviðs til úrvinnslu.$line$Ólafur Þór Gunnarsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 18.37. Fundi var fram haldi kl. 19.12.$line$$line$Margrét Friðriksdóttir dró til baka afgreiðslutillögu sína og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við tillögu Samfylkingarinnar:$line$"Brott falli ?Kópavogsbær leitist við [...] án endurgjalds.? Í stað þess komi: $line$Menntasviði verði falið að vinna umsögn og koma með tillögur að útfærslu ásamt kostnaðaráætlun.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Jón Finnbogason, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson"$line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.14. Fundi var fram haldið kl. 19.20.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögu fulltrúa meirihlutans með 11 atkvæðum.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson dró breytingartillögu sína til baka. $line$$line$Hlé var gert á fundi kl. 19.23. Fundi var fram haldið kl. 19.24.$line$$line$Forseti bar þá undir tillöguna svo breytta. Bæjarstjórn samþykkir tillöguna svo breytta með 11 atkvæðum.