Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarlind 6, SPOT. Flensborgarskóli. Umsókn um tækifærisleyfi. Beiðni um umsögn.

Málsnúmer: 1505247

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2775. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 12 maí, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 11. maí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Flensborgarskólans í Hafnarfirði, kt. 430985-0789, um tækifærisleyfi í tilefni af lokaballi skólans miðvikudaginn 20. maí 2015 frá kl. 22:00-01:00 á Spot, að Bæjarlind 6, 200 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 27. gr. rgl. nr. 585/2007. Ábyrgðarmaður er Magnús Þorkelsson, kt. 101057-7719 og um öryggisgæslu annast Go Security. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 1. mgr. 25. gr. reglugerðar nr. 1127/2007 um lögreglusamþykktir.$line$